Bókin sem hafði frábær áhrif en á sama tíma fullkomlega óþolandi

Mars Baldurs, stúdent í nútímafræði, gefur út sína fyrstu bók
Bókin sem hafði frábær áhrif en á sama tíma fullkomlega óþolandi

Mars Baldurs er stúdent í nútímafræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og gefur út sína fyrstu bók. Bókin er smásaga sem ber titilinn „Hamingja“. Bókin fjallar um tilfinningar manneskjunnar og undirstrikar mikilvægi þess að tala um þær og leita sér hjálpar þegar þörf er á.

Mars kynnir bókina sína í dag, sumardaginn fyrsta, í dagstofu Sigurhæða. Tilvalið að njóta stundarinnar með þeim og fagna sumrinu um leið.

Spjall við eldhúsborðið varð að bókahugmynd

Hugmyndin að bókinni kviknaði út frá samtali við eldhúsborðið heima hjá foreldrum Mars.

„Þau voru að tala um tvo frændur mína og hvernig annar þeirra hafði reynt að nota næturvaktirnar í sauðburðinum til að fara á trúnó með hinum frænda mínum og tala um tilfinningar sínar. Hinn frændinn var ekkert mjög hrifinn af þessu og reyndi eins og hann gat að komast hjá þessu. Þetta var svolítið grátbrosleg saga. Það blandaðist síðan vangaveltum um hvernig samfélagið virkaði ef við myndum ekki deyja náttúrulega, ef við þyrftum að vinna fyrir því eða haga okkur á ákveðinn hátt til þess að fá að deyja. Þannig að þetta varð að svolítið skondinni blöndu. Og ég held ég ætli ekkert að fara að minnast á þetta við frændur mína,“ segir Mars um það hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði.

Vonast til að vekja fólk til umhugsunar um andlega heilsu

Ef Mars ætti að lýsa bókinni í þremur orðum myndi hann segja að hún væri furðuleg, kímileg og andstyggileg. Eins vonar Mars að lesendur hafi gaman að bókinn og fái lesendur til þess að hugsa sig um.

„Ég hef líka alveg rosalega gaman að því þegar fólk hefur sína eigin túlkun á sögunni og er ekkert alltof mikið að reyna að kryfja hvað höfundurinn vildi að boðskapur hennar yrði, þannig að vonandi verða túlkanirnar sem flestar og fjölbreyttastar.“

Um þau áhrif sem bókin gæti haft á lesendur segir Mars: „Ég held að það séu fullmiklar væntingar til fimm þúsund orða smásögu að vona að hún fái fólk til að vera líklegra til að tala um tilfinningar sínar og leita sér hjálpar ef þeim líður illa. Ef hún fær einhverja til að velta fyrir sér málefnum tengdum andlegri heilsu þá væri það gaman“.

„Ég vil ekki vera hræsnari“

Að lokum um bókina segir Mars að bókin hafi haft að einhverju leyti frábær áhrif á sig en verið alveg fullkomlega óþolandi á sama tíma. „Ég get ekki skrifað gagnrýni um það hvernig fólk neitar að tala um tilfinningar sínar og neitað svo sjálfur að gera það. Ég vil ekki vera hræsnari. Það hefur verið alveg dásamlegt að vera opnari gagnvart því að leita mér hjálpar í mínum þunglyndislotum en líka verið alveg óþolandi að þurfa að berskjalda sig. Þannig að já, frábær áhrif og fullkomlega óþolandi.“

Mikið val í nútímafræði, sem hentaði mjög vel

Eins og áður sagði stundar Mars nám í nútímafræði. Sú námsleið varð fyrir valinu vegna þess að hann langaði til þess að flytja aftur til Akureyrar. Mars bjó á Akureyri á meðan hann stundaði nám í VMA og langaði að koma aftur. Honum þótti því sniðugt að fara í nám sem er einungis kennt á Akureyri og við HA. „Auðvitað fannst mér líka nútímafræði hljóma mjög spennandi og mig langaði í nám þar sem ég gæti ráðið mikið hvað ég læri. Um þriðjungur námsins í nútímafræði er val, sem hentar mér mjög vel,“ segir Mars um val sitt á HA. Að lokum segir Mars að samfélagið í Háskólanum á Akureyri sé lítið en þétt og auðvelt að kynnast fólki og alveg frábært.