Ferðamálarannsóknir í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði gesti

Um 190 þátttakendur frá 27 löndum komu saman í Reykjavík dagana 6.–8. október á alþjóðlegri ráðstefnu um ferðamálarannsóknir. Ráðstefnan, Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, var haldin í 34. sinn.

Yfirskrift hennar var Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good? og beindist umræðan að hlutverki ferðaþjónustu í síbreytilegum heimi, áskorunum greinarinnar og möguleikum hennar til að hafa jákvæð áhrif á samfélög.

Norðurlöndin skiptast á að hýsa ráðstefnuna

Dagskráin var fjölbreytt og flutt voru 165 erindi í 28 málstofum, auk tveggja pallborðsumræðna og fimm vinnustofa. Meðal þátttakenda var fræðafólk í ferðamálum og fulltrúar ferðaþjónustunnar sem miðluðu rannsóknum, báru saman reynslu og ræddu framtíð greinarinnar.

Ráðstefnan hófst með móttöku í Perlunni þar sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði gesti. Næstu tvo daga fór dagskráin fram á Hótel Reykjavík Öskju. Aðalfyrirlesarar voru Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri og Henna Konu, prófessor við Háskóla Austur-Finnlands.

Í tengslum við ráðstefnuna var einnig haldið tveggja daga námskeið fyrir doktorsnema í umsjón námsbrautar í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Þar gafst nemendum tækifæri til að þróa rannsóknarhugmyndir sínar, fá endurgjöf og kynnast öðrum fræðimönnum á sviðinu.

Ráðstefnan er haldin árlega og skiptast Norðurlöndin á að hýsa hana. Hún er hluti af starfi norrænu samtakanna NORTHORS, sem stuðla að fræðilegri umræðu og miðlun rannsókna á sviði ferðaþjónustu. RMF á sæti í stjórn samtakanna fyrir hönd Íslands.

Rannsóknarmiðstöð ferðamála annaðist skipulagningu

Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) annaðist skipulagningu ráðstefnunnar þetta árið og þakkar öllum þátttakendum, fyrirlesurum, samstarfsaðilum, styrktaraðilum og öðrum þeim sem komu að skipulagningunni fyrir framlag sitt til vel heppnaðrar ráðstefnu. 

Rannsóknamiðstöð ferðamála er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum og er hýst við HA. Auk háskólanna þriggja tilnefna Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofa hvor sinn fulltrúa í stjórn miðstöðvarinnar.

Markmið RMF eru að efla rannsóknir á sviði ferðamála, styrkja tengsl háskólastarfs og atvinnulífs og auka þekkingu á ferðamálum með innlendu og erlendu samstarfi. Miðstöðin leggur áherslu á að auka skilning á áhrifum ferðamennsku á hagkerfi, samfélag og umhverfi. Það gerir hún meðal annars með rannsóknasamstarfi, útgáfu fræðirita, upplýsingamiðlun og ráðgjöf, auk þess að standa fyrir ráðstefnum og fyrirlestrum.

Nánar um ráðstefnuna á vef Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.