Furðulegt draumalíf Ludovicos Petravitti

Ný gamansaga eftir Giorgio Baruchello
Furðulegt draumalíf Ludovicos Petravitti

Ný bók eftir Giorgio Baruchello, prófessor við Félagsvísindadeild, kom út fyrir skemmstu. Bókin er á ítölsku og skrifuð með fræðimanninum G. Roberto Buccola. Hún fjallar á skoplegan hátt um sérkennilegt og spaugilegt draumalíf persónunnar, Ludovicos Petravitti. Persónan varð upphaflega til í hugarheimi höfundanna við skrif á fyrra bókmenntaverki, Burloni animati in libera uscita.

Ludovico er afar greindur verkfræðingur en jafnframt hlédrægur og jafnvel feiminn. Líkt og flest annað fólk á þessari brennandi plánetu glímir hann við rótgróið óöryggi og taugaveiklun. Hann er einnig vitsmunalega ráðvilltur og að einhverju leyti tilfinningalega bitur svo jaðrar við önuglyndi.

Í stuttu máli er Ludovico holdgervingur nútíma vesturlandabúans að mati höfunda og óafvitandi fulltrúi þess mannfjölda sem gjarnan gleymist, meirihluta fólks sem hefur í raun engin veruleg völd. Jafnframt er hann andlegur spegill þar sem lesendur geta séð sjálfa sig, hafi þeir hugrekki og vilja til þess.

Með dálítilli heppni geta gamansamar bókmenntir á borð við þær sem Giorgio og Roberto hafa skapað orðið farvegur fyrir alvarlegar sálfræðilegar og heimspekilegar vangaveltur. Kjósi lesendur hins vegar einfaldlega að njóta drauma og martraða Ludovicos með bros á vör eða jafnvel skellihlæja er það líka vel við hæfi.