Gervigreind: Frá samtali til aðgerða

Mikil þátttaka, lifandi umræður og nýtt samstarf um framtíð svæðisins á tímum gervigreindar
Gervigreind: Frá samtali til aðgerða

Mikill áhugi var á opnum viðburði Háskólans á Akureyri og Drift EA, Gervigreind: Hver mótar framtíðina?, sem fram fór í Hátíðarsal háskólans í gær. Mæting fór fram úr væntingum en um 130 gestir mættu í Hátíðarsalinn og þá fylgdust einnig starfsfólk og stúdentar HA með í streymi.

Á viðburðinum var sjónum beint að áhrifum gervigreindar á menntun, rannsóknir, nýsköpun, atvinnulíf og samfélagið í heild. Rauður þráður í umræðum dagsins var að framtíðin mótist ekki eingöngu af tækninni sjálfri heldur af því hvernig við viljum nýta hana.

Áhugasöm geta nálgast upptöku af viðburðinum hér.

Ný tækifæri á tímum gervigreindar

Hjálmar Gíslason, frumkvöðull og formaður starfshóps stjórnvalda um málefni gervigreindar, flutti erindi þar sem hann útskýrði á aðgengilegan hátt hvað gervigreind er, hvernig hún virkar og hvaða tækifæri felast í nýtingu hennar.

Hann lagði áherslu á að stærstu tækifærin fælust ekki endilega í því að vinna sömu verkefni á skemmri tíma heldur í því að geta tekist á við verkefni sem áður voru talin ómöguleg.

Hjálmar fjallaði jafnframt um mikilvægi þess að efla færni samfélagsins, nýta gervigreind á íslensku og á okkar forsendum og tryggja að ávinningur tækninnar nái til allra. Forvitni, sérþekking, sköpun og samskiptahæfni muni áfram gegna lykilhlutverki í samfélagi þar sem gervigreind verður sífellt stærri hluti af daglegu lífi.

Glærur Hjálmars má nálgast hér.

Mannleg hugsun í breyttum heimi

Í kjölfar erindisins fóru fram líflegar pallborðsumræður þar sem meðal annars var rætt um hlutverk háskóla, sveitarfélaga og atvinnulífs í þeirri umbreytingu sem nú á sér stað.

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, ræddi áhrif gervigreindar á kennslu, rannsóknir og stjórnsýslu háskóla. Meðal þeirra áskorana sem hún nefndi voru þróun námsmats, efling gagnrýninnar hugsunar og mikilvægi þess að búa stúdenta undir breytt starfsumhverfi.

Jafnframt var rætt um tækifæri til að efla þverfaglegt nám, einfalda verkferla og skapa starfsfólki aukið svigrúm til að sinna öðrum verkefnum.

Gestir tóku virkan þátt í umræðunum með fjölbreyttum spurningum og vangaveltum, meðal annars um sjálfstæða hugsun, persónuvernd, stafrænt sjálfstæði og möguleika gervigreindar til að auka aðgengi, sjálfstæði og lífsgæði fólks.

Smæð samfélagsins er styrkleiki

Mikil tækifæri felast í samstarfi háskólans, sveitarfélaga og atvinnulífs á Norðurlandi. Nándin í samfélaginu og stuttar boðleiðir skapa góðar forsendur fyrir þekkingarmiðlun, samstarf og sameiginlega nýsköpun.

Í umræðunum kom skýrt fram að innleiðing gervigreindar snýst ekki eingöngu um tækni heldur einnig um fólk, vinnustaðamenningu og breytingastjórnun. Mikilvægt sé að skapa fólki tíma og rými til að læra, prófa sig áfram og deila reynslu sinni með öðrum.

Með því að virkja þá þekkingu og forvitni sem þegar er til staðar í samfélaginu skapast tækifæri til að verða leiðandi í nýtingu gervigreindar.

Nýtt samstarfsverkefni kynnt í janúar

Á viðburðinum greindi Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastjóri Drift EA frá því að Háskólinn á Akureyri, Akureyrarbær og Drift EA muni í janúar kynna nýtt samstarfsverkefni sem miðar að því að efla hæfni á sviði gervigreindar á svæðinu.

Það skiptir máli að vera forvitin, þora og spyrja spurninga, tala saman og deila þekkingu okkar á milli. Þannig lærum við hvert af öðru, byggjum upp færni og sköpum ný tækifæri fyrir samfélagið okkar.