Gervigreind: Frá stórum spurningum til raunverulegra tækifæra

Háskólinn á Akureyri og Drift EA bjóða til opins samtals um gervigreind á morgun þar sem sjónum verður beint að framtíð menntunar, rannsókna, nýsköpunar og samfélagsins
Gervigreind: Frá stórum spurningum til raunverulegra tækifæra

Gervigreind er þegar farin að breyta því hvernig við lærum, störfum, stundum rannsóknir og sköpum ný verðmæti. Þróunin er hröð og henni fylgja bæði tækifæri og áskoranir. En hvernig getum við nýtt tæknina á ábyrgan hátt og hver á að hafa áhrif á þá framtíð sem hún mótar?

Þessar spurningar verða í brennidepli á morgun á viðburðinum Gervigreind: Hver mótar framtíðina? sem fram fer í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri kl. 9–11. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal milli háskólasamfélagsins, atvinnulífsins og almennings um þróun gervigreindar og þau tækifæri sem fram undan eru.

Háskólar gegni lykilhlutverki í þróuninni

Háskólar gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að þróun og ábyrgri nýtingu gervigreindar. Þeir skapa nýja þekkingu, þróa kennsluhætti og undirbúa stúdenta fyrir síbreytilegar kröfur atvinnulífs og samfélags. Með aukinni notkun gervigreindar verður jafnframt sífellt mikilvægara að stúdentar öðlist hæfni til að nýta tæknina á gagnrýninn og ábyrgan hátt.

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, leggur áherslu á að háskólar taki virkan þátt í þessari þróun.

„Háskólar gegna lykilhlutverki í að undirbúa stúdenta fyrir síbreytilegan veruleika þar sem gervigreind verður sífellt stærri hluti af námi, störfum og samfélaginu. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að stúdentar öðlist þekkingu og hæfni til að nýta tæknina á ábyrgan og gagnrýninn hátt. Þess vegna er mikilvægt að háskólar taki þátt í samtalinu um þróun og nýtingu gervigreindar,“ segir Áslaug.

Tækifærin sem felast í gervigreind eru fjölbreytt. Í kennslu getur tæknin stuðlað að nýjum leiðum til þekkingarmiðlunar, einstaklingsmiðaðs náms og aukinnar hæfni stúdenta. Í rannsóknum getur hún auðveldað úrvinnslu flókinna gagna, varpað ljósi á ný tengsl og skapað nýjar leiðir til að nálgast rannsóknarviðfangsefni. Þá getur gervigreind einnig gegnt mikilvægu hlutverki í nýsköpun með því að auðvelda þróun hugmynda, prófun lausna og verðmætasköpun.

Að mati Svövu Bjarkar Ólafsdóttur, nýsköpunarstjóra HA, felast sérstaklega mikil tækifæri í því að tengja þessi svið saman. Með því að nýta þekkingu úr rannsóknum í kennslu og nýsköpun megi skapa grundvöll fyrir frekari framþróun í samfélaginu.

Frá stórum spurningum til aðgerða

Á viðburðinum flytur Hjálmar Gíslason, frumkvöðull og fjárfestir sem leiddi starfshóp stjórnvalda um gervigreind, erindi þar sem hann mun draga upp heildarmynd af þróuninni. Hann mun meðal annars fjalla um niðurstöður starfshópsins og áhrif gervigreindar á menntun, rannsóknir, nýsköpun og samfélagið.

Að erindinu loknu fara fram pallborðsumræður þar sem ólík sjónarhorn mætast. Auk Hjálmars taka þátt Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar. Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Drift EA, stýrir pallborðsumræðunum og Svava Björk Ólafsdóttir er fundarstjóri viðburðarins.

Áhersla verður lögð á að færa umræðuna frá almennum vangaveltum um möguleika tækninnar yfir í raunveruleg tækifæri og næstu skref. Þar verður meðal annars horft til þess hvernig efla megi samstarf rannsókna, atvinnulífs og opinberrar þjónustu og hvaða verkefni hægt sé að ráðast í nú þegar.


Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri HA

„Mig langar sérstaklega að við færum umræðuna frá því hvað tæknin geti gert yfir í það hvað við ætlum sjálf að gera. Hvaða tækifæri getum við gripið hér á Norðurlandi? Hvernig getum við tengt betur saman rannsóknir, atvinnulíf og opinbera þjónustu? Og hvað getum við byrjað að gera strax?“ segir Svava Björk.

Tækifæri fyrir Norðurland

Þróun gervigreindar getur skapað fjölbreytt tækifæri fyrir atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi. Í Eyjafirði er öflugt atvinnulíf, sterkt háskólasamfélag og stuttar boðleiðir sem geta skapað góð skilyrði fyrir samstarf og nýsköpun.

Með auknu samstarfi háskólans, fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra stofnana má nýta þessa styrkleika til að þróa nýjar lausnir og skapa verðmæti. Viðburðinum er meðal annars ætlað að hvetja til slíks samtals og vekja hugmyndir að nýjum verkefnum sem hægt væri að þróa áfram.

Svava Björk leggur áherslu á að gervigreind sé ekki eingöngu málefni háskóla eða tæknifólks. Þróunin muni hafa áhrif á fjölmargar starfsgreinar og ólíka þætti dagslegs lífs og því sé mikilvægt að sem flestir taki þátt í umræðunni.

Öll velkomin til samtals um framtíðina

Eins og áður kom fram fer viðburðurinn Gervigreind: Hver mótar framtíðina? fram á morgun í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri kl. 9–11.

Viðburðurinn er opinn öllum áhugasömum, hvort sem þau starfa við menntun, rannsóknir, nýsköpun, í atvinnulífinu, eru stúdentar eða vilja einfaldlega fræðast um áhrif gervigreindar á samfélagið. Gestum gefst einnig kostur á að beina spurningum til þátttakenda.

Svava minnir á að framtíð gervigreindar ráðist ekki eingöngu af tækninni sjálfri, heldur einnig af þeim ákvörðunum sem við tökum um nýtingu hennar.

„Við eigum ekki að sitja í aftursætinu og bíða eftir að sjá hvert tæknin fer með okkur. Við eigum að vera við stýrið,“ segir Svava Björk að lokum.

Nánari upplýsingar og skráning á viðburðinn eru hér.