Gleðistund Góðvina var haldin föstudaginn síðastliðin í kjölfar fyrri tveggja athafna Háskólahátíðar. Hátíðarbragur var yfir skólanum og gleði dagsins fylgdi inn í stundina.
Góðvinir 25 ára á næsta ári
Sigrún Stefánsdóttir, formaður Góðvina, sagði stuttlega frá verkefnum samtakanna sem felast í að auka sýnileika og opna skólann fleiri hópum. Með þessu vonast stjórn til að fjölga meðlimum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum og efla þannig samtökin enn frekar í þeirra hlutverki að styðja við háskólann.

Þá steig Maja Eir söngkona á stokk og tók vel valin lög við undirleik Hallgríms Jónasar Ómarsson, gítarleikara. Þau fluttu þekkt dægurlög í bland við frumsamda tónlist Maju Eir og dúóið sló í gegn og var klappað upp.
Myndasýning var í gangi á skjá á meðan Gleðistund stóð þar sem var samsafn af gömlum myndum úr starfi Góðvina og almennu lífi í háskólanum. Sýninguna má sjá með því að smella hér.
Við þökkum þeim sem lögðu leið sína til okkar á Gleðistund og hlökkum til að sjá ykkur að ári þegar Góðvinir fagna einnig 25 ára afmæli samtakanna.
Nýbreytni við úthlutun heiðursviðurkenningu
Sigrún sagði frá félaginu í hverri athöfn á Háskólahátíð ásamt því að kandídatar fengu með útskriftarskjölum kynningarblað um Góðvini. Þá veittu Góðvinir heiðursviðurkenningu Góðvina sem er veitt stúdentum sem hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu háskólans á meðan á námstíma stóð. Í ár var sú nýbreytni að heiðursviðurkenningarhafar hlutu einnig fjárhæð er nemur innritunargjöldum fyrir eitt misseri eða upphæð 100.000 kr.
Í ár hlutu eftirfarandi kandídatar viðurkenninguna:
Sara Lind Sigurðardóttir - Viðskiptadeild

Sara Lind hefur verið mjög öflugur fulltrúi stúdenta. Hún var forseti Reka sem er aðildarfélag viðskiptafræðinema og styrkti félagið og starfsemi þess mikið. Hún sat deildarfundi viðskiptadeildar þar sem hún var öflugur talsmaður stúdenta.
Sara Lind tók virkan þátt í kynningarstarfi skólans og í vetur sat hún í Stúdentaráði og verður annað ár til viðbótar og gætti þar hagsmuna stúdenta. Hún starfaði líka í Landsamtökum íslenskra stúdenta til þess að hafa áhrif á málefni stúdenta á landsvísu. Framlag hennar er bæði umfangsmikið og dýrmætt. Með dugnaði og heilindum hefur hún haft mikilvæg áhrif á samfélagið okkar.
Cristina Silvia Cretu – Lagadeild

Cristina Cretu hefur verið afar öflugur fulltrúi stúdenta. Hún var formaður Þemis, sem er aðilarfélag laganema við HA og sinnti því starfi af fagmennsku og dugnaði. Hún tók virkan þátt í deildarfundum og stjórnarfundum sviðsins og stóð þar vörð um hagsmuni stúdenta.
Hún sat í Stúdentaráði, tók þátt í starfi Landssamtaka íslenskra stúdenta og var alltaf boðin og búin til að aðstoða, hvort sem það var í þágu stúdenta eða í kynningarstarfi skólans. Cristina sat líka í jafnréttisráði og var virk í því sviði. Framlag hennar hefur verið bæði umfangsmikið og dýrmætt. Með dugnaði og heilindum hefur Cristina haft mikilvæg áhrif á samfélagið okkar.
Við þökkum þeim báðu innilega fyrir allt þetta og við óskum þeim hjartanlega til hamingju með brautskráninguna og óskum líka velfarnaðar í þeim verkefnum sem bíða handan við hornið.
Frekari upplýsingar um Góðvini og skráning í samtökin
Næla Góðvina var einnig til sölu um helgina á Háskólahátíð og í ár brautskráðist stærsti hópur kandídata sem taldi tæplega 640 einstaklinga. Stjórn Góðvina stóð vaktina og sköpuðust góðar umræður um hlutverk Góðvina ásamt nýskráningum í félagið. Frekari upplýsingar um Góðvini og skráningu í samtökin má finna með því að smella hér.