Heimsókn til Austurbrúar á Egilsstöðum markar upphaf að auknu samstarfi við þekkingarsetur um landið.
Fulltrúar háskólans heimsóttu Austurbrú á Egilsstöðum þriðjudaginn 10. nóvember í þeim tilgangi að efla samstarf háskólans við þekkingarsetur víða um land. Markmiðið er meðal annars að gera þjónustu háskólans aðgengilegri fyrir stúdenta sem búsettir eru utan Akureyrar og styrkja námssamfélag þeirra í heimabyggð.
Í ferðinni voru Silja Rún, verkefnastjóri námssamfélags, Bryndís, prófstjóri, María, forstöðumaður Nemendaráðgjafar, og Sigga Ásta, bókasafnsfræðingur. Á móti hópnum tóku Eva Jörgensen og Guðrún Ásgeirsdóttir, verkefnastjórar hjá Austurbrú, ásamt Hrönn Grímsdóttur, náms- og starfsráðgjafa. Eva kom frá Stöðvarfirði og Guðrún og Hrönn frá Neskaupstað, sem endurspeglar vel það víðfeðma samstarf og tengsl sem þekkingarsetrin byggja á.
Heimsóknin til Austurbrúar er fyrsta skrefið í að efla tengsl og samstarf við þekkingarsetur um land allt.

Þjónusta HA nær út fyrir Akureyri
Stór hluti stúdenta við háskólann býr utan Akureyrar og því er mikilvægt að huga að því hvernig hægt sé að styðja við þá í námi og skapa þeim tækifæri til að vera hluti af námssamfélagi háskólans, óháð búsetu.
Þekkingarsetrin gegna þar mikilvægu hlutverki, enda bjóða þau upp á góða aðstöðu fyrir stúdenta til að sinna námi sínu og nýta sér ýmsa þjónustu. Með auknu samstarfi við setrin vill HA meðal annars vekja athygli stúdenta á þeirri aðstöðu og þjónustu sem þeim stendur til boða í heimabyggð og hvetja þá til að nýta sér hana.
Í heimsókninni til Austurbrúar gafst stúdentum meðal annars tækifæri til að hitta Maríu frá Nemendaráðgjöf HA og Siggu Ástu frá bókasafni háskólans. Með því gafst þeim kostur á að fá persónulega þjónustu og ráðgjöf í sínu nærumhverfi.
Aðgengi að þjónustu óháð búsetu
Þótt stúdentar geti nýtt sér þjónustu Nemendaráðgjafar og Bókasafnsins í gegnum fjarþjónustu er mikilvægt að kynna þá möguleika vel og tryggja að öll viti af þeim úrræðum sem standa til boða.
Stúdentar geta meðal annars bókað fjarfund hjá Nemendaráðgjöf hér og fengið aðstoð frá bókasafnsfræðingi við heimildaleit, upplýsingaleit og önnur verkefni tengd náminu hér.
Með áframhaldandi samstarfi við Austurbrú og önnur þekkingarsetur er stefnt að því að styrkja tengslin við stúdenta um allt land, auka sýnileika þjónustu HA og stuðla að því að allir stúdentar hafi tækifæri til að vera virkir þátttakendur í námssamfélaginu, hvar sem þeir búa.
Námssamfélag Háskólans á Akureyri á ekki aðeins heima á Akureyri heldur um allt land.