„Háskólalífið er bæði fjölbreytt og spennandi“

Heiðrún Hafdal, stúdent í Háskólanum á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í skólanum
„Háskólalífið er bæði fjölbreytt og spennandi“

Í hvaða námi ert þú?
Ég er að læra lögfræði

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Ég ætlaði alltaf að verða tannlæknir en svo fattaði ég seinna meir að það væri eiginlega bara ekkert fyrir mig. Ég sá svo ljósið og fór í lögfræði, og eins og er er evrópurétturinn að heilla mig mest.

Uppáhaldsstaður í HA?
Uppáhaldsstaðirnir mínir í HA eru L202 þegar Þemis bókar hana í prófatíð og matsalurinn (hehe)

Skemmtilegasta minning þín úr HA?
Það er engin ein sérstök minning sem kemur upp í hugann en mér þykir alltaf einstaklega vænt um mómentin þegar við stelpurnar förum loksins að skilja efnið almennilega eftir að hafa verið að rotna inni í L202 í marga sólarhringa.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?
Mér finnst háskólalífið á Akureyri bæði fjölbreytt og spennandi og ég hlakka til að kynnast því betur á komandi skólaári, í nýju hlutverki í framkvæmdarstjórn SHA.

Hvaða ráð myndir þú gefa nýnema sem er að hefja nám hér í haust?
Ég myndi ráðleggja þeim að reyna að taka eins mikinn þátt og þú getur, ég kynntist mínum bestu vinkonum á nýnemadögum bara með því að vera aðeins meiri extrovert en vanalega, og ég sé svo alls ekki eftir því.

Hvað er það besta við að vera HA-ingur?
Samfélagið og stemningin finnst mér það besta við að vera HA-ingur. Það er dýrmætt að þekkja fólk í flestum deildum og að vita nokkurn veginn hvern maður er að fara að sjá þegar maður fer á teppið, ég er farin að halda að sumir eigi heima á teppinu.