Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda opnuð föstudaginn 24. apríl
Í næstu viku, föstudaginn 24. apríl klukkan 9.30, fer fram opnunarviðburður Rannsóknamiðstöðvar um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri. Þar er fólki boðið að koma og hlýða á erindi og umræður um rannsóknir á málefnum innflytjenda á Íslandi og fá upplýsingar um tilurð miðstöðvarinnar.
Hvað gera svona rannsóknamiðstöðvar?
„Rannsóknamiðstöðvum er ætlað að framkvæma og safna gögnum sem lúta að málaflokknum svo að þau sem vinna að viðkomandi málum geti byggt sína vinnu og stefnumótun á tölfræðilegum upplýsingum,“ segir Markus Meckl, prófessor við Félagsvísindadeild. Markus hefur leitt uppbyggingu miðstöðvarinnar.
Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda verður þverfagleg rannsóknamiðstöð sem heyrir undir Hug- og félagsvísindasvið háskólans og er stofnuð í þeim tilgangi að efla rannsóknir á innflytjendamálum og tengdum samfélagsbreytingum á Íslandi.
Markus segir einnig: „Okkur þótti mikilvægt að bjóða fólki á opnunarviðburð svo að öll hefðu möguleika á að kynna sér þá starfsemi sem mun fara fram. Það er gaman að segja frá því að á viðburðinn kemur dr. Noa K. Ha, rannsóknarstjóri sambærilegrar miðstöðvar í Þýskalandi, og í pallborði verður fólk frá bæði Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Pallborðinu verður stýrt af Ásthildi Linnet, sérfræðingi hjá félags- og húsnæðisráðuneytinu.“
Rannsóknamiðstöðin er sett á laggirnar sem viðbragð við samfélagslegum þörfum og áherslum sem fram koma í Hvítbók í málefnum innflytjenda frá árinu 2024 og í samræmi við hlutverk íslenskra háskóla samkvæmt lögum. Vinnan við stofnunina var fjármögnuð úr Þróunarsjóði innflytjendamála á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Viðburðurinn öllum opinn
Öll eru velkomin á opnunarviðburðinn sem fer fram bæði á stað og í streymi. Á stað verður hann í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri og frekari upplýsingar um viðburðinn má finna hér.