Hversu skýrt sérðu fyrir þér grasker?

Árni Gunnar Ásgeirsson, dósent við Sálfræðideild Háskólans á Akureyri, er meðal höfunda nýrrar rannsóknar sem varpar ljósi á ólíkar hugarmyndir fólks
Hversu skýrt sérðu fyrir þér grasker?

Hugsaðu þér grasker. Sérðu fyrir þér skýra mynd í sterkum litum eða er myndin dauf og óljós? Kannski birtist engin mynd.

Þessi innri sjón, eða hugsýnir (e. visual imagery), er afar ólík milli einstaklinga. Árni Gunnar og samstarfsfólk hans kynna nú nýtt mælitæki, VIVAS (e. Visual Imagery Visually Anchored Scale), sem á að hjálpa til við að skilja þennan mun. Rannsóknin birtist í vísindatímaritinu Cortex.

Auk Árna koma þau Heiða María Sigurðardóttir, doktor í taugavísindum og prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands, Vaka Vésteinsdóttir, dósent við Sálfræðideild HÍ, Dagur Árnason, meistaranemi í klínískri sálfræði við HÍ, og Marelle Mäekalle, MS í sálfræði frá HÍ, að rannsókninni.

Hvernig er hægt að lýsa því sem við sjáum fyrir okkur í huganum?

Hefðbundnir spurningalistar um hugsýnir byggja gjarnan á lýsingum í orðum. Með VIVAS fær fólk hins vegar sjónræn viðmið og metur hvernig þau samsvara eigin hugsýnum hvað varðar gegnsæi, skerpu og litmettun.

Í rannsókninni tóku 205 einstaklingar úr slembivöldu úrtaki Þjóðskrár þátt. Þeir mátu hugsýnirnar út frá meðal annars dýrum, andlitum, byggingum og mat.

Maturinn litríkari í huganum

Niðurstöðurnar benda til þess að ekki sé nóg að lýsa hugsýnum sem einfaldlega sterkri eða veikri. Litir hennar geta verið sterkir þótt útlínur og form séu óskýrari, og öfugt.
Það skipti líka máli hvað fólk sá fyrir sér. Hugsýnir af mat voru að jafnaði litríkari en myndir úr öðrum flokkum. Ókunnugir hlutir kölluðu hins vegar fram veikastar hugsýnir á öllum þremur mæliþáttunum.

Nýja mælitækið og hefðbundinn spurningalisti gáfu heldur ekki alltaf sömu mynd af einstaklingum. Rannsóknin bendir því til þess að ólíkar mæliaðferðir geti varpað ljósi á mismunandi hliðar þessarar innri upplifunar.

Hvers vegna skiptir þetta máli?

Betri skilningur á hugsýnum getur lagt grunn að rannsóknum á því hvernig við lærum, munum og vinnum úr reynslu. Hann getur einnig skipt máli fyrir sálfræðilega meðferð sem byggir á því að kalla fram eða breyta myndum í huganum. Henta slíkar aðferðir öllum, jafnvel þeim sem sjá litlar eða engar hugsýnir?
Til að svara slíkum spurningum þarf fyrst að geta lýst og mælt þessa ólíku upplifun. Þar getur nýja mælitækið komið að gagni og stutt frekari rannsóknir á tengslum hugsýna við nám, minni og geðheilsu.

Aðgangur að vísindagreininni í Cortex.