Níu hljóta framgang í starfi

Tvö í stöðu prófessors og sjö í stöðu dósents
Níu hljóta framgang í starfi

Akademískt starfsfólk HA getur árlega sótt um framgang í starfi. Mat á umsóknum er í höndum dómnefndar háskólans og byggir mat dómnefndar á heildstæðu faglegu mati á frammistöðu og árangri í rannsóknum, kennslu, stjórnun og þjónustu í þágu háskólans og samfélagsins í samræmi við reglur háskólans þar að lútandi.
Í framhaldi ákveður rektor á grundvelli dómnefndarálits hvort veita skuli framgang í starfi.

Eftirfarandi hljóta framgang í starfi samkvæmt framansögðu:

Á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði:

 

 

 

Dr. Cynthia Thúy Ðinh hlýtur framgang í stöðu dósents við Viðskiptadeild

 

 

 

Dr. Kjartan Sigurðsson hlýtur framgang í stöðu dósents við Viðskiptadeild

 

 

 

Dr. Nanna Ýr Arnardóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Hjúkrunarfræðideild

 

 

 

Dr. Sigríður Sía Jónsdóttir hlýtur framgang í stöðu prófessors við Hjúkrunarfræðideild

 

 

 

Dr. Than Viet Nguyen hlýtur framgang í stöðu prófessors við Auðlindadeild

 

Á Hug- og félagsvísindasviði:

 

 

 

 

Dr. Andrea Hjálmsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Félagsvísindadeild

 

 

 

Dr. Eyrún Eyþórsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Félagsvísindadeild

 

 

 

Dr. Guðmundur T. Heimisson hlýtur framgang í stöðu dósents við Sálfræðideild

 

 

Dr. Kristinn Már Ársælsson framgangur við nýráðningu í stöðu dósents við Félagsvísindadeild

 

Háskólinn á Akureyri óskar þessu starfsfólki innilega til hamingju með framganginn og árangur í starfi!