Öflugt rannsóknastarf á sviði byggða- og samfélagsmála

Vel sótt ráðstefna Viðskiptadeildar er nú aðgengileg í upptöku
Öflugt rannsóknastarf á sviði byggða- og samfélagsmála

Vel var mætt á ráðstefnuna Svæði, byggðir og samfélag á Íslandi sem Viðskiptadeild stóð fyrir föstudaginn 25. september síðastliðinn. Fjölbreyttur hópur gesta sótti ráðstefnuna og skapaðist góður vettvangur fyrir miðlun rannsókna og samtal um þróun byggða og samfélaga um land allt.

„Með ráðstefnunni vildum við bæði miðla því vísindastarfi sem fram fer á þessum sviðum og sýna þá miklu þekkingu sem hefur byggst upp innan Viðskiptadeildar. Hér er fólk að rannsaka byggða- og samfélagsmál frá fjölmörgum sjónarhornum og góð aðsókn sýnir að það er mikill áhugi á þessari þekkingu,“ segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Viðskiptadeild og ráðstefnustjóri.

Alls voru flutt tólf erindi á ráðstefnunni og var dagskránni skipt í þrjá hluta:

  • Vinnumarkaðir og fjarvinna í dreifbýli
  • Byggð, samgöngur og atvinnulíf
  • Byggðir, búseta og þjónusta

Meðal annars var fjallað um farvinnu og sveigjanleika á vinnumarkaði, áhrif hnattvæðingar, óstaðbundin störf, samgöngur, sjávarútveg, ferðaþjónustu, nýsköpun, úrgangsmál sveitarfélaga og búferlaflutninga ungs fólks.

Vettvangur rannsókna, samfélags og miðlun þekkingar

Starfsfólk Viðskiptadeildar flutti erindin ásamt rannsakendum sem þau hafa átt í samstarfi við. Ráðstefnan gaf þannig innsýn í þá breidd rannsókna sem unnið er að innan deildarinnar á sviði svæða-, byggða-, sveitarstjórna- og samfélagsmála.

Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar sveitarfélaga, stofnana og atvinnulífs auk fólks úr háskóla- og rannsóknasamfélaginu. Góð aðsókn endurspeglaði áhuga á þeim fjölbreyttu viðfangsefnum sem tekin voru fyrir og þeim áskorunum og tækifærum sem íslenskar byggðir standa frammi fyrir.

Ráðstefnan var jafnframt vettvangur til að tengja saman rannsóknir og samfélag og miðla þekkingu sem getur nýst við umræðu og ákvarðanatöku um framtíð byggðar og búsetu á Íslandi.