Tekið er við umsóknum til og með 13. ágúst
Félagsvísindadeild hefur ákveðið að opna fyrir umsóknir nýnema í fjölmiðlafræði og nútímafræði á seinna umsóknartímabili. Tekið er við umsóknum frá 5. ágúst til og með 13. ágúst. Eindagi skrásetningargjalda er 20. ágúst.
Fjölmiðlafræði
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á BA-próf í fjölmiðlafræði. Námið veitir sérstakan grunn í félags- og hugvísindum með sérstakri áherslu á fjölmiðlun, eðli hennar og áhrif. Samhliða fræðilegri dýpt fá stúdentar verklega þjálfun í að skapa fjölmiðlaefni. Áhugasöm geta kynnt sér fjölmiðlafræði betur hér.
Nútímafræði
Nútímafræði er fjölbreytt BA-nám sem sameinar hug- og félagsvísindi og gefur stúdentum tækifæri til að skoða samfélagið frá ólíkum sjónarhornum. Í náminu er lögð áhersla á gagnrýna hugsun, menningu, samfélagsbreytingar og samtímann, auk þess sem stúdentar geta mótað námið að eigin áherslum. Áhugasöm geta kynnt sér nútímafræði betur hér.
Gott að hafa í huga
- Á seinna umsóknartímabili eru einungis umsóknir sem uppfylla almenn innritunarskilyrði teknar til afgreiðslu. Ekki verður tekið við undanþáguumsóknum. Einnig verður ekki heimilt að skipta yfir í aðra námsleið
- Almennur umsóknarfrestur rann út 5. júní og verður ekki tekið við umsóknum í aðrar námsleiðir