Orkuskipti og áhrif þeirra á samfélög

Þriðju vinnustofu lokið í verkefni um eflingu norðurslóðarannsókna
Orkuskipti og áhrif þeirra á samfélög

Þriðja vinnustofa verkefnisins Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi fór fram í Háskóla Íslands þann 11. mars síðastliðinn. Með henni er þremur af fjórum vinnustofum verkefnisins lokið.

Vinnustofan bar yfirskriftina „Orkuskipti og áhrif þeirra á samfélög“ og var lögð áhersla á að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hér á landi á því sviði. Jafnframt var markmið að efla vísindasamstarf og styðja við sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.

Sterkt rannsóknarsamfélag á Íslandi

Vinnustofan er hluti af heildstæðu verkefni þar sem fjórar þematengdar vinnustofur eru haldnar annars vegar á Akureyri og í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að nýta betur þá þekkingu sem til staðar er innan íslenskra háskóla og rannsóknastofnana. Þannig er hægt að styrkja samráð og samstarf í ljósi þeirra umfangsmiklu áskorana sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér á norðurslóðum.

Fyrsta vinnustofan var haldin á Akureyri í maí 2025 og fjallaði um aðlögun að loftslagsbreytingum. Önnur vinnustofan fór fram í Reykjavík í september sama ár og beindist að málefnum hafsins og alþjóðlegu vísindasamstarfi. Þar komu saman um 50 þátttakendur frá háskólum og lykilstofnunum og var meðal annars fjallað um loftslagsbreytingar, verndun líffræðilegrar fjölbreytni, hafrannsóknir og fjölbreytt alþjóðleg samstarfstækifæri og styrkjamöguleika. Einnig voru kynnt fjölmörg rannsóknaverkefni sem sýndu fram á styrk og möguleika íslensks rannsóknarsamfélags á þessu sviði.

Fjórða og síðasta vinnustofan fer fram í september 2026, þar sem sjónum verður beint að umhverfisvernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nánari upplýsingar um dagskrá og tímasetningu verða kynntar síðar.

Verkefnið, sem er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Norðurslóðanets Íslands og Rannís, miðar að því að efla samstarf íslenskra rannsakenda á sviði norðurslóða og styrkja stöðu þeirra í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Það er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Frekari upplýsingar um verkefnið og niðurstöður vinnustofanna má finna hér.