Sambúð eftir starfslok: Þögul áskorun þegar heilabilun skellur á

Viðkvæmt en mikilvægt umræðuefni á Opnu húsi í háskólanum okkar allra
Sambúð eftir starfslok: Þögul áskorun þegar heilabilun skellur á

Viðhorf fólks til starfsloka er margbreytilegt. Sumir kvíða þessum tímamótum en aðrir hlakka til nýs kafla í lífinu. Á sama tíma getur reynt á aðra þætti í sambúð en áður, þegar daglegt líf breytist og sameiginlegur tími eykst.

Á Opnu húsi í Háskólanum á Akureyri í gær flutti Dr. Olga Ásrún Stefánsdóttir lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild erindi um sambúð fólks á efri árum. Hún hefur nýverið varið doktorsritgerð sína sem fjallar meðal annars um áhrif flutnings á hjúkrunarheimili á sambönd fólks.

Í erindinu fjallaði Olga Ásrún um þá þætti sem móta upplifun fólks af starfslokum, svo sem fjárhag og heilsu, en ekki síður tilfinningalega þætti eins og kvíða og skömm. Hún benti á að margir líti á starfslok sem tækifæri til að njóta lífsins á nýjan hátt, á meðan aðrir upplifa óvissu og jafnvel missi. 

Sérstaklega vakti hún athygli á því hversu viðkvæmt umræðuefni heilabilun maka er. Í rannsóknum sínum hefur hún rætt við fjölda fólks sem upplifir þetta sem einkamál sem erfitt er að deila með öðrum. Sumir viðmælenda höfðu aldrei rætt stöðu sína við neinn og reyndu jafnvel að fela hana fyrir sínum nánustu.

Þrátt fyrir að margt sé vel gert í þjónustu við eldra fólk segir Olga Ásrún að enn sé þörf á aukinni umræðu og auknum stuðningi. Mikilvægt sé að nýta þau úrræði sem í boði eru, bæði fyrir þann sem greinist með heilabilun og ekki síður fyrir maka viðkomandi.

Næsta Opna hús: Að halda jafnvægi í lífinu

Mánudaginn 20. apríl verður fjallað um hreyfingu á mannamáli á Opnu húsi þar sem sjónum verður beint að því hvernig hægt er að viðhalda styrk, jafnvægi og sjálfstæði án þess að flækja lífið. Á dagskrá er:

  • Héðinn Svarfdal Björnsson kynnir verkefnið Virk efri ár og þau fjölbreyttu tækifæri sem þar eru í boði
  • Þorleifur Stefánsson, sjúkraþjálfari, ræðir byltuvarnir og sýnir hvernig snjallforrit getur stutt fólk við að stunda einfaldar og öruggar æfingar heima hjá sér
  • Anna Rebekka Hermannsdóttir deilir svo reynslu sinni af því að þjálfa 60+ íbúa – hvað virkar í raun og hvað skiptir mestu máli til lengri tíma

Opna húsið 20. apríl er ætlað öllum sem vilja hreyfa sig á öruggan hátt, auka lífsgæði og fá hvatningu til að halda áfram á sínum eigin forsendum. Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér.

Velkomin í háskólann okkar allra!

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!