Mánudaginn 16. mars síðastliðinn fór fram málþing um rannsóknir á sjálfsvígum: Samstarf háskóla og annarra stofnana. Málþingið var vel sótt og kom saman fjölbreyttur hópur fræða- og fagfólks til að kynna nýjustu sjálfsvígsrannsóknir ásamt fulltrúum þjónustu- og samfélagsúrræða sem sinna sjálfsvígsforvörnum á Íslandi.
Málþingið markaði mikilvægan áfanga þar sem kynnt var samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, embættis landlæknis og Landspítala, um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs. Fulltrúar þeirra skrifuðu formlega undir viljayfirlýsingu vegna þess á málþinginu en verkefnið er styrkt af Samstarfi háskóla.
Markmið samstarfsins er að efla þverfaglegt samstarf, styrkja rannsóknir og bæta nýtingu gagna til að auka þekkingu á sjálfsvígshegðun og forvörnum. Þá er lögð áhersla á að niðurstöður rannsókna nýtist markvisst í þjónustu og stefnumótun.
Á málþinginu voru einnig haldin erindi og pallborðsumræður þar sem fjallað var um stöðu sjálfsvígsforvarna á Íslandi, nýjar rannsóknir og þau úrræði sem standa einstaklingum og aðstandendum til boða. Þar kom skýrt fram mikilvægi aukins og þverfaglegs samstarfs milli rannsakenda, heilbrigðiskerfis og samfélagslegra aðila til að stuðla að árangursríkum forvörnum.
Næstu skref felast í áframhaldandi uppbyggingu rannsóknarvettvangsins, þróun sameiginlegra rannsóknarverkefna og eflingu samstarfs milli aðila sem koma að sjálfsvígsforvörnum. Jafnframt verður lögð áhersla á miðlun þekkingar og áframhaldandi samtal milli rannsakenda, fagfólks og samfélags.