Sprellmótið — áratuga gömul hefð sem sameinar HA-inga

Sprellmótið hefur í áratugi verið órjúfanlegur hluti af félagslífi stúdenta við HA
Sprellmótið — áratuga gömul hefð sem sameinar HA-inga

Búningar, þrautir, hæfileikakeppni og heilbrigður keppnisandi einkenna Sprellmótið, einn stærsta viðburð skólaársins hjá Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA). Á bak við sprellið býr þó enn meira. Viðburðurinn á sér áratuga sögu við HA og hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að tengja stúdenta saman og styrkja námssamfélagið.

Sprellmótið fór fram á dögunum og tóku öll sjö aðildarfélög SHA þátt. Á Sprellmótinu keppa félögin í fjölbreyttum þrautum auk þess sem hvert félag undirbýr atriði fyrir hæfileikakeppni. Atriðin geta verið á sviði, í formi myndbands eða blanda af hvoru tveggja.

Og svo eru það búningarnir. Hvert aðildarfélag mætir í eigin búningum og setja litríkir hópar sterkan svip á daginn. Dagskráin hefst gjarnan í miðbæ Akureyrar og í ár söfnuðust félögin saman á Ráðhústorgi áður en haldið var í skrúðgöngu yfir á Akureyrarvöll þar sem fyrstu þrautir dagsins fóru fram.


Guðrún Lára

„Sprellmótið er í raun, eins og nafnið bendir til, algjört sprell þar sem skemmtun, samheldni og keppnisskap fara saman og skapa ógleymanlegan dag,“ segir Guðrún Lára Einarsdóttir, viðburðastjóri SHA.

Hefð sem nær áratugi aftur í tímann

Sprellmótið er langt frá því að vera nýtt af nálinni. Aðalbjörn Jóhannsson, forseti SHA, segir að hann hafi sjálfur orðið hissa þegar hann fór að kanna hversu langt aftur hefðin nær. Hann fann meðal annars viðtal frá árinu 1999 við þáverandi formann skemmtinefndar stúdenta þar sem Sprellmótið var þegar nefnt sem eitt helsta verkefni nefnadarinnar árin þar á undan. Á skrifstofu SHA má jafnframt finna gamlar ljósmyndir frá Sprellmótum fyrri ára og margir fyrrverandi stúdentar HA eiga sterkar minningar frá mótinu. „Þetta er greinilega eitthvað sem er alveg samofið DNA-inu hjá HA-ingum,“ segir Aðalbjörn.


Aðalbjörn í hópi Kumpána á Sprellmótinu

Þrátt fyrir langa sögu hefur kjarni mótsins haldist sá sami: að koma stúdentum saman, skapa stemmingu og leyfa keppnisskapinu að njóta sín.

Stór ísbrjótur fyrir nýja stúdenta

Sprellmótið fer fram snemma á haustmisseri og er því einn af fyrstu stóru viðburðunum sem nýnemar upplifa eftir að háskólagangan hefst. Guðrún Lára segir mótið gegna mikilvægu hlutverki við að draga nýnema inn í félagslífið: „Fyrir utan Nýnemadaga held ég að þetta sé viðburðurinn þar sem nýnemar kynnast best samnemendum sínum.“ Aðalbjörn tekur undir það og lýsir Sprellmótinu einfaldlega sem „einum stærðarinnar ísbrjót“. Keppnin milli aðildarfélaganna þjappi hópnum saman en á sama tíma myndist tengsl þvert á nám og félög.

Sprellmótið nær jafnframt út fyrir veggi háskólans. Þegar hundruð búningaklæddra stúdenta mæta í miðbæ Akureyrar vekur það jafnan athygli bæjarbúa og gesta. „Þetta er ákveðin leið fyrir stúdenta að minna á sig og háskólann og gefa þá tilfinningu inn í samfélagið að hér séu svo sannarlega enn þá stúdentar með sínar hefðir og sitt sprell,“ segir Aðalbjörn.

Fjarnemar leggja leið sína norður

Námssamfélag HA nær langt út fyrir Akureyri og meðal þátttakenda á Sprellmótinu eru stúdentar sem stunda nám sitt að mestu eða öllu leyti í fjarnámi. Sumir þeirra leggja leið sína sérstaklega til Akureyrar til þess að taka þátt. Guðrún Lára segir það sýna svart á hvítu hversu sterkt félagslífið við HA er.

Aðalbjörn segir mikilvægt að allir stúdentar upplifi að þeir tilheyri sama samfélagi, óháð því hvar þeir stunda námið: „Það að vera í háskólanámi er svo miklu meira en bara fyrirlestrar í stofu og það er ótrúlega mikilvægt að fjarnemar upplifi sig sem jafngildan hluta af því sem við erum að gera. Það er virkilega dýrmætt þegar fólk leggur á sig ferðalög vegna þess að það finnur að það tilheyrir.“

Háskólagangan er meira en nám og verkefnaskil

Félagslífið við HA einskorðast vitaskuld ekki við Sprellmótið. SHA stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum allt skólaárið, allt frá smærri samverum til árshátíðar og vísindaferðar þar sem stúdentar fara meðal annars í heimsóknir til fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Guðrún Lára segir félagslífið mikilvægan hluta af háskólagöngunni: „Að mínu mati á háskólaganga ekki að snúast eingöngu um lærdóm og verkefnaskil, heldur einnig um það að kynnast samnemendum, mynda tengsl og skapa fullt af minningum.“ Sprellmótið er gott dæmi um það. Þar kynnast stúdentar fólki sem þeir hefðu mögulega annars lítið hitt, ný vináttubönd myndast og aðildarfélögin þjappast saman.

„Við erum öll HA-ingar fyrst“

Aðalbjörn og Guðrún Lára segja að Sprellmótið í ár hafi farið fram úr væntingum og einkenndist dagurinn af mikilli þátttöku og samheldni.

„Það er alveg sama hvaða verkefni poppaði upp, það voru alltaf mættar hendur eða hugar í að leysa þau,“ segir Aðalbjörn. Eitt augnablik sem stendur sérstaklega upp úr hjá þeim báðum: Þegar tilkynnt var að Unit væri sigurvegari Sprellmótsins í ár. „Ég fékk eiginlega bara smá hlýtt í hjartað. Fagnaðarlætin voru rosaleg og komu úr öllum áttum,“ segir Guðrún Lára.

Aðalbjörn segir viðbrögðin í salnum hafi fangað anda Sprellmótsins vel: „Þó Sprellmótið sé keppni milli aðildarfélaga þá erum við öll HA-ingar fyrst.“ Og þegar hann rifjar daginn upp er annað augnablik sem erfitt er að komast fram hjá: „Ég fékk gæsahúð þegar ég fylgdist allt í einu með 250 stúdentum í óundirbúnum dansi við Macarena og Súperman með Ladda. Það var bara svo mikil hamingja.“

Guðrún Lára þakkar öllum sem komu að framkvæmd mótsins, ekki síst fulltrúum í Viðburðanefnd SHA sem stóðu að undirbúningi þess, auk dómara úr röðum starfsfólks og allra þeirra sem lögðu hönd á plóg.

Og skilaboðin til þeirra sem hefja nám við HA á næsta ári eru einföld: „Ekki missa af Sprellmótinu!“

Egill Bjarni Friðjónsson útskrifaður HA-ingur tók meðfylgjandi myndir. Forsíðumyndin er af UNIT.

Til hamingju UNIT, sigurvegarar Sprellmótsins 2026!