Fimmtudaginn 3. september heimsóttu þingmenn Vestnorræna ráðsins Háskólann á Akureyri til að kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi á sviði norðurslóðamála sem fram fer á háskólasvæðinu.
Vestnorræna ráðið er þingmannavettvangur þjóðþinga Færeyja, Grænlands og Íslands. Heimsóknin fór fram í tengslum við ársfund ráðsins sem haldinn var á Akureyri dagana 1. til 3. september.
Heimsóknin var skipulögð af aðilum innan Norðurslóðamiðstöðvar Íslands sem er öflugt þekkingarsamfélag sem byggst hefur upp á háskólasvæðinu á Akureyri. Miðstöðinni tilheyra Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Norðurslóðanet Íslands (IACN), Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) og vinnuhópar Norðurskautsráðsins CAFF og PAME.
Fulltrúar þessara aðila tóku á móti þingmönnum Vestnorræna ráðsins og kynntu fjölbreytt starf miðstöðvarinnar á sviði rannsókna, þekkingarmiðlunar, stefnumótunar og alþjóðlegs samstarfs á norðurslóðum.
Öflugt þekkingarsamfélag á norðurslóðum
Í Norðurslóðastefnu Íslands er Akureyri skilgreind sem Norðurslóðamiðstöð Íslands, miðstöð íslenskrar og alþjóðlegrar þekkingar á málefnum norðurslóða.
Á háskólasvæðinu hefur myndast öflugt þverfaglegt þekkingarsamfélag þar sem fjölbreyttar stofnanir og skrifstofur vinna að rannsóknum, menntun, stefnumótun og samstarfi á sviði norðurslóðamála. Akureyri en ein stærsta miðstöð Norðurskautsráðsins og fjölmörgum vöktunar- og matsverkefnum sem ná til allra norðurslóða er stýrt af stofnunum með aðsetur á Akureyri.
Nánari upplýsingar um norðurslóðastarf á Akureyri má finna hér.
Fjölbreytt verkefni og sameiginlegar áskoranir

Þingmennirnir fengu kynningu á hlutverki Norðurslóðamiðstöðvar Íslands og þeim fjölmörgu verkefnum sem aðilar hennar taka þátt í á sviði norðurslóðamála.
Meðal umfjöllunarefna voru alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum, breytt landslag í alþjóðasamvinnu, vöktun og verndun líffræðilegrar fjölbreytni, áhrif loftslagsbreytinga, sjálfbær nýting auðlinda, auknar skipasiglingar á norðurslóðum, verndun haf- og strandsvæða og samfélagsleg áhrif vaxandi ferðaþjónustu.
Vestnorrænt samstarf í brennidepli
Mikið af því rannsóknastarfi sem fram fer á háskólasvæðinu snerti sameiginleg hagsmunamál Íslands, Færeyja og Grænlands. Jafnframt fer stór hluti starfsins fram í alþjóðlegu samstarfi þar sem löndin þrjú koma að með einum eða öðrum hætti.
Þetta samstarf setti sterkan svip á heimsóknina og skapaði vettvang fyrir líflegar umræður milli þingmannanna og sérfræðinga Norðurslóðamiðstöðvar Íslands.
Hér má nálgast fleiri myndir frá heimsókninni.