Opið fyrir umsóknir í sjávarútvegsfræði og stjórnun

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember
Opið fyrir umsóknir í sjávarútvegsfræði og stjórnun

Auðlindadeild og Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri hafa ákveðið að opna fyrir umsóknir í þrjár námsleiðir með námsbyrjun á vormisseri 2027. Um er að ræða BS nám í sjávarútvegsfræði við Auðlindadeild og framhaldsnám í stjórnun við Viðskiptadeild. Ekki verður opnað fyrir umsóknir í aðrar námsleiðir við háskólann um áramótin. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember.

Opið er fyrir umsóknir í eftirfarandi námsleiðir:

Sveigjanlegt nám sem hentar ólíkum þörfum

Sjávarútvegsfræði er í boði bæði sem staðnám og fjarnám. Flestir fyrirlestrar eru aðgengilegir í upptöku, en fjarnemar mæta í tvær vikulangar námslotur á Akureyri á hverju misseri. Skyldumæting er í verklegar lotur, bæði hjá staðnemum og fjarnemum.

Meistaranám í stjórnun er 100% fjarnám sem er skipulagt í stuttum lotum og hentar því vel þeim sem vilja samræma nám, vinnu og fjölskyldulíf. Kennsla fer fram á netinu og er námið í boði bæði til MM gráðu án lokaritgerðar og MS gráðu með lokaritgerð.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel fyrirkomulag námsins, inntökuskilyrði og námskröfur á vefsíðum viðkomandi námsleiða áður en umsókn er send inn.

Umsóknarfrestur og skrásetningargjald

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026. Skrásetningargjald er 75.000 kr. og eindagi greiðslu er 10. desember 2026. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér gjaldskrá háskólans hér.

Mikilvægar upplýsingar um inntöku

Einungis umsóknir sem uppfylla almenn inntökuskilyrði verða teknar til afgreiðslu. Ekki verður tekið við undanþáguumsóknum. Einnig verður ekki heimilt að skipta yfir í aðra námsleið í kjölfar innritunar. 

Umsækjendur geta fylgst með stöðu umsóknar í umsóknargátt Háskólans á Akureyri.

Við hvetjum öll sem hafa áhuga á að hefja nám eða taka næsta skref í menntun sinni til að kynna sér námsleiðirnar og senda inn umsókn innan tiltekins frests. Hér má finna svör við algengum spurningum.