Veganestið er greinaflokkur á vegum Góðvina UNAK þar sem tekin eru viðtöl við brautskráða stúdenta Háskólans á Akureyri
Almar Ögmundsson er í dag Kópavogsbúi sem bæði ólst upp á Akureyri og í Edinborg. Hann lauk BSc-prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og hélt að því loknu aftur til Edinborgar þar sem hann lauk MSc-prófi í Corporate Finance við University of Edinburgh. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
„Ég starfa í dag sem sjóðstjóri og í lánateymi Kviku eignastýringar.“ Segir Almar aðspurður út í núverandi starf en samhliða því hefur hann byggt upp eigin rekstur ásamt fyrrverandi samnemendum sínum úr HA. „Við eigum og rekum Leigulausnir og Hótel Norðurland. Leigulausnir er félag sem sérhæfir sig í skammtímaleigu og tengdri rekstrarþjónustu.“
Almar hefur jafnframt sinnt fjölbreyttum félags- og stjórnarstörfum. „Í dag er ég til dæmis varaforseti Evrópusambands hnefaleika og sit í stjórn Hnefaleikasambands Íslands, þar sem ég gegndi áður formennsku. Verkefnin hafa því verið fjölbreytt og spannað fjármál, greiningarvinnu, rekstur, alþjóðleg samskipti og stjórnun.“
Námið góður grunnur að krefjandi framhaldsnámi
Áhugi á rekstri og fjármálum réði miklu þegar kom að vali Almars á að nema viðskiptafræði við HA.
„Ég valdi viðskiptafræði vegna áhuga míns á rekstri og fjármálum og því hvernig góðar ákvarðanir, fjármögnun og skipulag geta haft áhrif á rekstur fyrirtækja. Sá áhugi hefur haldist og er í raun rauði þráðurinn í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur síðan, hvort sem það er í fjármálum, eigin rekstri eða félags- og stjórnarstörfum.“
„Námið gaf mér traustan faglegan grunn í viðskiptafræði sem nýttist vel þegar ég fór í krefjandi framhaldsnám erlendis. Grunnurinn úr náminu við HA nýttist mér einnig mjög vel þegar ég lauk síðar prófi í verðbréfaviðskiptum.“
Samspil náms, félagsstarfa og nálægðar við fólk
Þegar Almar er beðinn um að lýsa HA í þremur orðum nefnir hann grunn, sjálfstæði og tækifæri. Samspil námsins, félagsstarfanna og nálægðarinnar við kennara og samnemendur stendur sérstaklega upp úr þegar hann lítur til baka.
„Ég tók virkan þátt í félagslífinu og sinnti töluverðum kynningarstörfum fyrir skólann. Þar fékk ég meðal annars reynslu af því að koma fram, kynna skólann og námið og taka þátt í kynningar- og sölustarfi. Sú reynsla hefur nýst mér vel síðar, bæði í starfi og félagsstörfum.“
„Þar sem skólinn er ekki stór og nándin mikil gafst gott tækifæri til að kynnast stúdentum úr öðrum námsgreinum. Það gerði félagslífið fjölbreyttara, víkkaði sjóndeildarhringinn og leiddi til góðra vináttubanda sem hafa haldist síðan.“
Nýtið nándina og takið virkan þátt
Almar hvetur þau sem hyggja á nám í viðskiptafræði við HA til að nýta sér þau tækifæri sem felast í nánu háskólasamfélagi.
„Nýtið ykkur nándina og takið virkan þátt, bæði í náminu og félagslífinu. Smærra umhverfi þýðir gott aðgengi að kennurum og líka tækifæri til að kynnast stúdentum úr öðrum námsgreinum. Það getur gert upplifunina fjölbreyttari og skapað tengsl og vináttubönd sem fylgja ykkur áfram.“
Hann ráðleggur stúdentum jafnframt að vera óhrædd við að spyrja spurninga og tengja námið við verkefni úr raunveruleikanum.
„Það er gott að líta á grunnnámið sem stökkpall frekar en endastöð. Sterkur grunnur frá HA getur opnað margar dyr, hvort sem stefnan er tekin á framhaldsnám, fjármál, eigin rekstur eða eitthvað allt annað.“
Fyrir áhugasöm má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina.