„Vinnustaður þar sem fólk hefur jöfn tækifæri til að hafa áhrif“

HA hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindadeildar, tekur við viðurkenningunni
Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindadeildar, tekur við viðurkenningunni

Háskólinn á Akureyri hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar.

Vaka Óttarsdóttir, sviðsstjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, segir viðurkenninguna vera hvatningu til að halda áfram að efla jafnrétti innan háskólans.

„Við erum stolt af þessari viðurkenningu. Við viljum að háskólinn sé vinnustaður þar sem fólk hefur jöfn tækifæri til að hafa áhrif, vaxa og nýta hæfileika sína. Kynjajafnvægi í stjórnun er mikilvægur hluti þess. Viðurkenningin er jafnframt hvatning til að halda áfram að rýna starfshætti okkar og tryggja að jafnrétti og inngilding séu sýnileg í daglegu starfi,“ segir Vaka.

Vinnustaður þar sem öll tilheyra

Áhersla á jafnrétti er samofin stefnu Háskólans á Akureyri til ársins 2030. Þar er sett fram skýr sýn á eftirsóknarverðan vinnustað sem byggist á inngildingu, samstöðu og hvetjandi menningu. Markmiðið er að skapa fjölbreytt háskólasamfélag þar sem öll tilheyra og fólk fær stuðning og tækifæri til að þróast í námi og starfi.

Þessum áherslum er fylgt eftir í metnaðarfullri jafnréttisáætlun HA fyrir árin 2025–2028. Áætlunin nær til starfsfólks, stúdenta og áhrifa háskólans á samfélagið og felur í sér tímasettar og mælanlegar aðgerðir. Meðal markmiða er að jafna tækifæri, rækta fjölbreytni og auka inngildingu, ásamt því að styðja við launajafnrétti og fjölskylduvænt starfsumhverfi.

Jafnari hlutur kvenna og karla í stjórnun íslensks atvinnulífs

Jafnvægisvogin er verkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem stuðlar að jafnari hlut kvenna og karla í stjórnun íslensks atvinnulífs. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem hafa náð því markmiði að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar.