Áslaug rektor leiðsegir um húsnæðið og kynnir starfsemi HA

4. júní 2026 kl. 14:00
?Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær
 
❤️Fimmtudaginn 4. júní bjóðum við gestum upp á heimsókn og kynningarferð um húsnæði háskólans. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA mun leiðsegja fólki um svæðið og bjóða upp á spjall um starfsemina.
 
?️Þá verður gefið tækifæri til að ræða hvaða efnivið fólk myndi vilja sjá á haustmisseri á Opið hús.
 
?Opið hús er samstarfsverkefni sem er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!