Tækninámsdagur HA | Opið hús

15. maí 2026 kl. 12:00-15:00
Öll velkomin á opið hús þar sem stúdentar í tæknifræði, tölvunarfræði og starfrænni heilbrigðistækni verða með bása og kynna spennandi verkefni

tækninámsdagur ha 2026!

Öll hjartanlega velkomin á TÆKNINÁMSDAG HA 2026

Föstudaginn 15. maí frá klukkan 12 til 15 verður opið hús í Háskólanum á Akureyri þar sem stúdentar í tæknifræði og tölvunarfræði ásamt meistaranemum í stafrænni heilbrigðistækni í HA við HR munu kynna verkefni sem þeir eru að leggja lokahönd á. Stúdentarnir verða með bása og plaköt til sýnis tilbúin í spjall um verkefni sín og námið.

Starfsfólk verður einnig til tals þar sem áhugasöm geta kynnt sér áhugavert og gagnlegt nám í tæknifræði og tölvunarfræði sem er í boði sem staðnám við HA í samstarfi við HR.

Viðburðurinn fer fram í Miðborg háskólans sem staðsett er við aðalinngang.

Verkefnin eru afar fjölbreytt:

  • Glatvarmi kyndir sundlaug
  • Róbótar
  • Vefsíðugerð
  • Sólarorka á þaki HA
  • Iðntölvur og sjálfvirkni
  • Vélrænt gagnanám í heilbrigðisgeiranum
  • Vefforritun - framendi og bakendi
  • Starfsnám
  • ...og margt fleira

Úr tölvunarfræði við HA í stofnun fyrirtækisins Maven

Boðið verður upp á opið erindi klukkan 12:30 í stofu M102

Helgi Hrafn Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Maven, segir frá sinni reynslu af því að stofna fyrirtæki í hugbúnaðargeiranum á Íslandi og nýfrágenginni sölu Maven til Origo. Hann segir einnig frá því hvernig hann sér leiðtogahlutverkið sem hann segir að byggist á að teymismeðlimum líði vel hverjum með öðrum og byggt sé upp traust innan.
Helgi Hrafn er HA-ingur sem brautskráðist úr tölvunarfræði frá HA árið 2003.

 

Öll velkomin - við hlökkum til að sjá ykkur!