Ver doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptadeild Háskóla Íslands
Mánudaginn 9. nóvember ver Guðmundur Kristján Óskarsson dósent við Viðskiptadeild HA doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Waste Management under Structural Constraints: Efficiency, Policy Reform, and Recycling Performance in Iceland (Úrgangsstjórnun í fjötrum kerfis: Umbætur, árangur og skilvirkni í endurvinnslu á Íslandi).
Andmælendur eru dr. Catherine Keske, prófessor við Department of Chemical and Materials Engineering, University of California, Merced, og dr. Giacomo Di Foggia, prófessor við Department of Economics, Management and Law, University of Milano-Bicocca.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Sveinn Agnarsson, prófessor við Háskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og dr. Helgi Þór Ingason, prófessor við Háskólann í Reykjavík.
Ásta Dís Óladóttir prófessor og deildarforseti Viðskiptadeildar stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.
Áhugasöm geta fylgst með í streymi hér.
Nánari upplýsingar um doktorsverkefnið má finna á vef HÍ.