Ert þú eða einhver sem þú þekkir með íslensku sem annað mál?

Fimm námsleiðir í boði við HA
Ert þú eða einhver sem þú þekkir með íslensku sem annað mál?

Háskólinn á Akureyri, í samstarfi við Háskóla Íslands, býður upp á fimm námsleiðir fyrir einstaklinga með íslensku sem annað tungumál. Frá og með haustmisseri hefur verið hægt að stunda nám í fjölmiðlafræði, nútímafræði, félagsvísindum og leikskólakennarafræði og nú bætist sálfræði við sem ný námsleið.

Í boði eru eftirfarandi námsleiðir í grunnnámi:

Námið er sérstaklega hannað fyrir stúdenta með íslensku sem annað tungumál og miðar að því að auðvelda þeim að hefja háskólanám sem að öðru leyti fer að mestu fram á íslensku. Á fyrsta ári taka stúdentar öflugt námskeið í íslensku sem öðru máli, í umsjón Háskóla Íslands, samhliða sínu fagnámi.

Fyrirkomulag námsins

  • Námið er fjögurra ára (240 ECTS) og er kennt bæði á íslensku og ensku.
  • Allt nám fer fram í fjarnámi.
  • Íslenskukennsla fer fram í rauntíma á netinu þrisvar í viku kl. 08:00.
  • Stúdentar í fjölmiðlafræði, nútímafræði og sálfræði koma saman einu sinni á misseri á Akureyri.
  • Stúdentar í leikskólakennarafræði koma saman tvisvar til þrisvar sinnum á misseri á Akureyri.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og umsóknarkröfur má finna á vefsvæðum einstakra námsleiða hér að ofan.

Ef þú hefur spurningar um námið getur þú haft samband við Heiðu Kristínu Jónsdóttur skrifstofustjóra Hug- og félagsvísindasviðs og Markus Meckl prófessor við Félagsvísindadeild.