Goðsagnir, gervigreind, hinsegin réttarfræði og afnýlenduvæðing

Þverfaglegt námskeið í lögfræði við HA
Frá vinstri, Davíð Þór Björgvinsson, Sara Fusco, Kristian Guttesen og Árdís Kár Ingvars
Frá vinstri, Davíð Þór Björgvinsson, Sara Fusco, Kristian Guttesen og Árdís Kár Ingvars

Í haust sameinaði námskeiðið Kennileg lögfræði II sérþekkingu úr lögfræði, félagsvísindum, heimspeki, menntavísindum og tækni. Námskeiðið er á meistarastigi til ML-gráðu og var þróað innan lagadeildar sem samstarfsverkefni í kennslu þvert á hefðbundin fræðasvið. Þar var byggt á ólíkum fræðilegum bakgrunni fjögurra kennara við HA.

Í námskeiðinu kynntust stúdentar gagnrýninni réttarfræði, sem dregur hlutleysi réttarins í efa og skoðar tengsl hans við samfélagslega, pólitíska og efnahagslega formgerð. Stúdentar fjölluðu um grundvöll réttarskipunarinnar og svigrúm dómara til mats, samhliða samtímasjónarmiðum á borð við afnýlendukenningar, gervigreind, hinsegin réttarfræði og gagnrýnar kenningar um kynþátt.

Fjórir kennarar, fjölbreytt sjónarhorn

Dr. Sara Fusco, aðjúnkt við Lagadeild, hóf námskeiðið á kynningu á uppruna og þróun gagnrýninnar réttarfræði og því hvernig hún ögrar hefðbundnum aðferðum við lögfræðilega röksemdafærslu. Þar var meðal annars fjallað um fullveldi, nýlendustefnu og sögulega þróun þjóðaréttar.

Dr. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor emeritus við Lagadeild, kenndi tvær kennslustundir um viðfangsefni sem eru í kjarna gagnrýninnar réttarfræði, goðsögnina um hlutleysi réttarins annars vegar og óákveðni réttarins og mat dómara hins vegar. Stúdentar veltu fyrir sér hvort dómarar geti aðskilið lög frá stjórnmálum, hvers vegna réttarreglur sem virðast sambærilegar geti leitt til ólíkra niðurstaðna og hvað setji túlkun dómara í raun skorður. Kennsla hans byggði á víðtækri reynslu hans sem fræðimanns og dómara, meðal annars við Mannréttindadómstól Evrópu.

Námskeiðið fór einnig út fyrir hefðbundin mörk lögfræðinnar. Dr. Kristian Guttesen, lektor við Kennaradeild, kynnti stúdentum hugtök á borð við hugrænt fullveldi og mannlega reisn í tengslum við gervigreind. Í kennslunni var skoðað hvernig ný tækni breytir valdatengslum, einkum á vinnustöðum, og hvort kennileg lögfræði geti verndað þá þætti sjálfræðis og mannlegs gildis sem erfitt er að mæla með tækni eða gera að markaðsvöru. Þverfaglegur bakgrunnur hans í heimspeki og menntavísindum gaf færi á að nálgast gervigreind út frá spurningum um þekkingu, sjálfræði, mannlegan þroska og siðferðilegt gildi.

Dr. Árdís Kár Ingvars, lektor við Félagsvísindadeild, fléttaði sjónarhornum úr félagsfræði og samfélagskenningum samtímans inn í síðasta hluta námskeiðsins. Í kennslu hennar var skoðað hvernig gagnrýnin réttarfræði hefur haft áhrif á síðari gagnrýnar kenningahefðir, með sérstakri áherslu á hinsegin réttarfræði og gagnrýnar kenningar um kynþátt. Með vísan til rannsókna sinna á fólksflutningum og flóttafólki sem sætir ofsóknum vegna kynhneigðar, kynvitundar eða kyntjáningar sýndi hún hvernig lagaleg flokkun, stofnanir og stjórnsýsluhættir tengjast sjálfsmynd, valdi og upplifun fólks. Rannsóknir hennar á hinsegin flóttafólki innan Dyflinnarkerfisins sýndu jafnframt hvernig gagnrýnar kenningar geta varpað ljósi á áhrif lagalegs og stjórnsýslulegs skipulags, sem virðist hlutlaust, á einstaklinga sem fóta sig innan kerfa sem stýra fólksflutningum.

Verkfæri fyrir lögfræðinga framtíðarinnar

Sameiginleg spurning tengdi saman ólík framlög kennaranna: Hvað getur kennileg lögfræði fært verðandi lögfræðingum í heimi sem breytist hratt og kallar í vaxandi mæli á þverfaglega nálgun?

Hera Jóhanna Heiðmar Finnbogadóttir, stúdent í ML-námi, hafði þetta að segja um námskeiðið, „ kennileg lögfræði er góður áfangi til að taka þar sem stóri heimurinn okkar verður minni og minni með nýrri tækniþróun og nýju normi. Fleiri og fleiri spurningar um gervigreinda eru að verða til, lögin eru ekki að halda í við tæknina, menningar eru að blandast saman með auknum fólksflutningum og við erum á stað þar sem við getum ekki ímyndað okkur hvað gerist á morgun. Því tel þessi áfangi muni hjálpa mér að þróa verkfærin sem ég þarf til að takast á við þennan nýja raunveruleika.“

Ragnheiður Anna Hallsdóttir, stúdent í ML-námi, bætir við, „mig langaði að kynnast fleiri lögfræðikenningum og öðlast dýpri skilning á hugmyndunum að baki þeim réttarreglum sem við lærum um, sem ég tel að muni efla gagnrýna hugsun mína í framtíðarstarfi..“

Nú þegar námskeiðinu er lokið er Kennileg lögfræði II gott dæmi um samstarf þvert á deildir sem átti upptök sín í lögfræðikennslu við HA.

Nánari upplýsingar: Dr. Sara Fusco, umsjónarkennari námskeiðsins.