Rannsóknarverkefnið CANDLES: Sustainable Nordic-Arctic Educational Leadership in Times of Opportunities and Challenges hefur hlotið framhaldsstyrk að upphæð 500 þúsund danskra króna úr Nordic Arctic Programme, sem er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið er þriggja ára verkefni sem fjallar um skólastjórnun í dreifðum byggðum á Norðurlöndum og norðurslóðum.
Sigríður Margrét Sigurðardóttir, dósent og deildarforseti Kennaradeildar Háskólans á Akureyri, leiðir verkefnið fyrir hönd alþjóðlega rannsóknarhópsins NordLead.
„Það er okkur ómetanlegt að fá þennan framhaldsstyrk og sérstaklega ánægjulegt að verkefnið hafi aftur fengið hæstu mögulegu styrkupphæð. Fyrsti styrkurinn gerði okkur kleift að leggja traustan grunn að samstarfinu og nú getum við stigið næsta skref sem er að vinna með skólastjórunum sjálfum. Það er þar sem verkefnið fer fyrir alvöru að lifna við,“ segir Sigríður Margrét, eða Sigga Magga eins og hún er jafnan kölluð.
Skólar gegna lykilhlutverki í samfélaginu
Í verkefninu er sjónum beint að grunnskólum í fámennum og dreifðum byggðum í Danmörku, Finnlandi, Grænlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þótt aðstæður séu ólíkar milli landa glíma skólastjórnendur víða við sambærileg viðfangsefni. Þau felast meðal annars í fólksfækkun, löngum vegalengdum, örum samfélagsbreytingum og mikilvægi þess að laga skólastarfið að menningu og þörfum hvers staðar.
Skólar í minni byggðum eru oft mun meira en staður þar sem börn sækja nám. Þeir geta verið hjarta samfélagsins og haft áhrif á samheldni, menningu og framtíð byggðarinnar. Eitt af markmiðum CANDLES er að auka þekkingu á því hvernig skólastjórnendur takast á við áskoranir og nýta þau tækifæri sem felast í aðstæðum hvers samfélags.
Gagnaöflun byggir á starfendarannsókn þar sem rannsakendur og skólastjórar vinna saman. Þar rýna skólastjórar í áskoranir og tækifæri eigin starfs, prófa leiðir til umbóta og leggja mat á árangurinn í samvinnu við rannsakendur. Þannig verður þekkingin til í skólastarfinu sjálfu og getur nýst með beinum hætti.
Vinnustofa í háskólanum í október
Fyrsta ár verkefnisins hefur einkum farið í að móta rannsóknina og byggja upp samstarf milli landanna. Um þrettán rannsakendur hafa tekið þátt í vinnustofum á netinu auk tveggja staðbundinna vinnustofa. Sú fyrri fór fram í Árósum í aðdraganda ráðstefnu Norræna menntarannsóknafélagsins, NERA, í mars og sú síðari við Háskólann á Grænlandi í Nuuk.
Verkefnið hefur jafnframt verið kynnt á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars á Arctic Frontiers 2026 í Tromsø og NERA 2026.
Með nýja styrknum hefst gagnaöflun í sex löndum í samstarfi við tólf skólastjóra, tvo frá hverju landi. Í október koma skólastjórarnir og rannsóknarhópurinn saman til vinnustofu í Háskólanum á Akureyri. Þar verður lagður grunnur að starfendarannsóknunum og þátttakendur deila reynslu og þekkingu þvert á landamæri.
Til lengri tíma er stefnt að því að niðurstöðurnar nýtist bæði skólastjórnendum og þeim sem móta menntastefnu. Meðal annars verða þróaðar hagnýtar leiðbeiningar um sjálfbæra skólastjórnun sem taka mið af sérstökum aðstæðum fámennra og dreifðra byggða á Norðurlöndum og norðurslóðum.
Smelltu hér til að nálgast frekari upplýsingar um CANDLES-verkefnið