„Okkar hlutverk er að hjálpa fólki að taka næsta skref“

Ný hugverkastefna háskólans tók gildi í byrjun nóvember
„Okkar hlutverk er að hjálpa fólki að taka næsta skref“

Ný hugverkastefna Háskólans á Akureyri skýrir réttindi og styður við að þekking og rannsóknaniðurstöður verði að lausnum sem nýtast samfélaginu. Starfsfólk háskólans, þau Svava Björk Ólafsdóttir nýsköpunarstjóri og Sindri Kristjánsson, lögfræðingur leiddu vinnuna við stefnuna með góðum stuðningi frá Auðnu Tæknitorgi.

Háskólinn á Akureyri birti á dögunum nýja hugverkastefnu sem háskólaráð samþykkti 29. október og tók gildi 1. nóvember. Hún setur ramma um eignarhald, vernd og hagnýtingu hugverka sem verða til í tengslum við starfsemi háskólans. Þar er meðal annars fjallað um uppfinningar, hugbúnað, hönnun og verkþekkingu.

Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri HA, segir markmiðið vera að auðvelda starfsfólki að þróa þekkingu sína áfram og koma henni í notkun.

„Við viljum að þekkingin sem verður til við Háskólann á Akureyri nýtist sem best í samfélaginu. Hugverkastefnan skýrir réttindi starfsfólks og háskólans og skapar traustari grunn fyrir næstu skref, hvort sem þau felast í þróun nýrra lausna, samstarfi við atvinnulífið eða stofnun fyrirtækja. Starfsfólk á að geta leitað stuðnings við að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og vitað hvernig réttindi þess eru tryggð.“

Brú milli rannsókna og hagnýtingar

Stefnan fjallar meðal annars um hvernig tilkynna eigi hugverk, meta möguleika á nýtingu þeirra og semja um fjárhagsleg réttindi og skiptingu ágóða. Hún tekur einnig á stofnun sprotafyrirtækja. Þannig fær starfsfólk skýrari mynd af ferlinu þegar tækifæri skapast til að nýta niðurstöður rannsókna.

Svava leggur áherslu á að þessi umgjörð hafi þýðingu bæði fyrir starfsfólk og þau sem háskólinn á í samstarfi við.

„Samþykkt hugverkastefnunnar er mikilvægt skref í að efla nýsköpun við Háskólann á Akureyri. Hér býr mikil þekking og við viljum skapa starfsfólki betri aðstæður til að þróa hana áfram í lausnir sem nýtast samfélaginu. Skýr umgjörð um hugverk veitir starfsfólki og samstarfsaðilum aukið öryggi og auðveldar okkur að byggja brú milli rannsókna og hagnýtingar þeirra.“

Stuðningur við að láta reyna á hugmyndir

Auðna Tæknitorg gegnir mikilvægu hlutverki í þessum stuðningi. Hún aðstoðar við mat á hugverkum, vernd þeirra og hagnýtingu og hefur meðal annars milligöngu um samstarf og samninga. Stefnan gerir jafnframt ráð fyrir fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk um hugverkavernd og nýtingu rannsóknaniðurstaðna.

Að sögn Svövu snýst framhaldið um að starfsfólk sjái tækifærin í eigin starfi og hafi stuðning til að kanna þau.

„Við erum með öflugt fólk í HA sem sér tækifæri og hefur hugmyndir sem eiga erindi út í samfélagið. Okkar hlutverk er að hjálpa því að taka næsta skref. Hugverkastefnan er mikilvægur hluti af því að efla nýsköpun í háskólanum, því skýr réttindi og góður stuðningur gefa fólki meira öryggi til að láta reyna á hugmyndir sínar.“

Hugverkastefna Háskólans á Akureyri og svör við algengum spurningum.