Heimsóknin er hluti af alþjóðlegu Erasmus+ verkefni sem ber yfirskriftina Viðurkenning og mat á fyrri reynslu í háskólamenntun á Vestur-Balkanskaga og var fyrsti liðurinn í þriðja verkþætti verkefnisins. Verkþátturinn er undir forystu Háskólans í Tallinn og er markmið hans að byggja upp ramma í kringum einingar í raunfærnimati og festa þær í sessi við samstarfsháskóla á Vestur-Balkanskaga. Það verður gert með mótun stefnu, verklags- og matsviðmiða, þróun stafrænna verkfæra og þjálfun starfsfólks.
Hagnýt þjálfun lykilatriði í heimsókn
Dagskráin samanstóð af fyrirlestrum, umræðum og gagnvirkum vinnustofum. Á vinnustofunum kynntust þátttakendur framkvæmd raunfærnimats, lagaumgjörð, matsferlum og gæðamálum. Þátttakendur fengu einnig hagnýta þjálfun með því að greina sýnishorn af færnimöppum umsækjenda, æfa matsviðtöl í hlutverkaleik og næstu skref verkefnis voru skipulögð.
Til að auðga dagskrána með sjónarhornum úr íslensku menntakerfi og atvinnulífi bauð háskólinn nokkrum gestafyrirlesurum að taka þátt. Meðal þeirra voru Aníta Jónsdóttir frá Grenivíkurskóla og Rúna Vigdís Guðmarsdóttir frá Rannís, auk Georgs Atla Hallssonar, stúdents í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri. Þá lögðu einnig sitt af mörkum Íris Hrönn Kristinsdóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar, og dr. Ólafur Örn Bragason, lektor í lögreglufræði á Hug- og félagsvísindasviði og forstöðumaður Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu.
Dýrmæt innsýn í íslenskt menntastarf
Starfsfólk Háskólans á Akureyri gegndi jafnframt lykilhlutverki í námsheimsókninni. Heiða Jónsdóttir, skrifstofustjóri Hug- og félagsvísindasviðs, og Anna Karen Úlfarsdóttir, verkefnastjóri við Kennaradeild, stýrðu nokkrum dagskrárliðum um raunfærnimat og Stéphanie Barillé, verkefnastjóri rannsókna við Félagsvísindadeild, sá um samhæfingu hagnýts undirbúnings og skipulags. Markus Meckl, deildarforseti og prófessor við Félagsvísindadeild, hafði yfirumsjón með heimsókninni, stýrði mótun og framkvæmd dagskrárinnar og tryggði að hún samræmdist markmiðum verkefnisins.
Framlög ofangreindra veittu þátttakendum dýrmæta innsýn í íslenskt menntastarf og ólíkar leiðir til að meta og viðurkenna fyrra nám og starfsreynslu. Heimsóknin skapaði jafnframt vettvang fyrir alþjóðleg skoðanaskipti þar sem þátttakendur frá Vestur-Balkanskaga, Eistlandi og Íslandi deildu reynslu, efldu samstarf og ræddu innleiðingu raunfærnimats við stofnanir sínar.