Símon Birgir, stúdent í Háskólanum á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í háskólanum
Í hvaða námi ert þú?
Ég er í hjúkrunarfræði á 2. ári.
Hver ert þú búsettur og hvað gerir þú þegar þú ert ekki að læra?
Ég bý í sveit á Grýtubakka 2 í Höfðahverfi, rétt hjá Grenivík. Við eru þar með 150 hross, 250 kindur, einn hund og einn kött. Þegar ég er ekki að læra er ég yfirleitt að sinna bústörfum. Við erum líka með hestaleigu og á sumrin vinn ég alfarið við að leiðsegja í viku hestaferðum. Ég var að koma heim úr göngum þessa helgina og er á leið í aðrar göngur næstu helgi. Einnig sit ég í stjórn Eirar – félag heilbrigðisvísindanema við HA. Svo það er alveg óhætt að segja að mér leiðist seint!

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?
Háskólalífið á Akureyri er ótrúlega gott. Mér finnst SHA – Stúdentafélag Háskólans á Akureyri ótrúlega duglegt að standa fyrir allskonar viðburðum.
Ég var í námi við Háskóla Íslands fyrir nokkrum árum og ég verð að segja að mér finnst háskólamenningin og háskólalífið á Akureyri mun betra.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Ég ætlaði alltaf að vera bóndi og það stefnir allt í það! Síðan er ég með hjúkrunarfræðina „on the side“.
Uppáhaldsstaður í HA?
Vitiði , ég er bara mjög hrifinn af kjallaranum.

Skemmtilegasta minning þín úr HA?
Ætli skemmtilegasta minning mín úr HA hafi ekki bara verið að taka þátt á nýnemadögum núna í haust. Ótrúlega gaman að taka á móti öllum nýnemunum.
Síðan var árshátíðin í vor líka geggjuð!
Hvað er það besta við að vera HA-ingur?
Ætli það sé ekki hvað skólinn er hæfilega lítill/stór. Það er auðvelt að kynnast fólki og andinn í skólanum er bara svo góður!
Ég mæli eindregið með því að stunda nám í Háskólanum á Akureyri.