Jósep Snorri og Hanna Klara, stúdentar í Háskólanum á Akureyri, eru næstu viðmælendur í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í háskólanum.
Á hvaða námsleið eru þið?
Jósep er á þriðja ári í viðskiptafræði með áherslu á sjávarútveg og Hanna er á öðru ári í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og markaðsgreinar.
Af hverju völdu þið þá námsleið og af hverju völdu þið HA?
Jósep og Hanna völdu bæði námsleiðirnar sínar vegna áhugasviðs. Jósep hefur áhuga á viðskiptafræði og sjávarútvegi og því lá beinast við að velja viðskiptafræði með áherslu á sjávarútveg. Áhugi Hönnu liggur hins vegar í markaðsfræði og stjórnun. Námið talaði því inn í hennar áhugasvið auk þess sem þau telja bæði námið vera fjölbreytt og bjóða upp á marga möguleika í framtíðinni.
Okkur fannst liggja beinast við að velja Háskólann á Akureyri vegna þess að við erum búsett á Akureyri okkur fannst þær námsleiðir sem við völdum heilla okkur og þær bjóða upp á góða möguleika í framtíðinni.

Hvað ætluðu þið að verða þegar þið yrðuð stór?
Jósep ætlaði sér alltaf að verða fótbolta maður en það var draumur inn hans þegar hann var yngri. En Hönnu aftur á móti langaði að verða svo margt, meðal annars kokkur eða leiðsögumaður.
Hvernig finnst ykkur háskólalífið á Akureyri?
Okkur finnst háskólalífið á Akureyri mjög skemmtilegt. Það er góður andi í skólanum og auðvelt að kynnast fólki. Félagslífið gerir mikið fyrir upplifunina og það er gott að geta tekið sér pásu frá náminu og gert eitthvað skemmtilegt með samnemendum. Við mælum mjög mikið með því að taka þátt í félagslífinu.

Hvað hefur komið ykkur mest á óvart við námið og félagslífið?
Það kom okkur mest á óvart hvað námið er fjölbreytt og hvað maður kynnist mörgum í gegnum félagslífið. Það er miklu meira við háskólalífið en bara fyrirlestrar og verkefni. Það kom okkur líka á óvart hvað það er ógeðslega gaman í HA og hvað allir eru tilbúnir að hjálpa þér, sama hvort það sé starfsfólk eða aðrir stúdentar.
Hvar finnst ykkur best að læra?
Jósep finnst best að læra á bókasafninu, því þar er gott næði og auðvelt að einbeita sér að náminu. Hönnu finnst hinsvegar best að læra í kennslustofu sem er laus eða á Borgum.

Hvað er það besta við að vera HA-ingur?
Okkur finnst fólkið og samheldnin vera það besta. Maður kynnist góðum vinum og verður hluti af skemmtilegu samfélagi, sem gerir námsárin enn betri og skemmtilegri.