Veganestið – Hilda Jana Gísladóttir

Veganestið er greinaflokkur á vegum Góðvina HA þar sem rætt er við brautskráða HA-inga
Veganestið – Hilda Jana Gísladóttir

„Ég ólst upp í Reykjavík en flutti norður þegar ég var tvítug og gekk með elstu dóttur mína. Upphaflega ætlaði ég bara að búa á Akureyri í eitt ár, en hér er ég enn þrjátíu árum síðar! Ég lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og fór síðan í Háskólann á Akureyri, þar sem ég lauk B.Ed.-gráðu. Síðar sneri ég aftur í HA og lauk diplómu í fjölmiðla- og boðskiptafræði. Í kjölfarið lauk ég MA-gráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og síðar diplómu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla,“ segir Hilda Jana sem er viðmælandi mánaðarins í Veganestinu.

Þekking og reynsla nýtt í samfélagslega mikilvæga starfsemi

„Ég kenndi í þrjú ár eftir útskrift samhliða störfum í fjölmiðlum og hafði þá þegar kynnst sjónvarpsgerð á námsárunum. Fjölmiðlarnir heilluðu mig og urðu minn starfsvettvangur í átján ár. Ég vann við frétta- og dagskrárgerð hjá Aksjón og Stöð 2 og síðar hjá RÚV, þar sem ég vann fyrir sjónvarp, útvarp og vef.“ Árið 2009 hóf Hilda Jana störf hjá N4 þar sem hún var dagskrárstjóri í sjö ár og framkvæmda- og sjónvarpsstjóri síðustu tvö árin. „Störfin voru afar fjölbreytt og ég fékk reynslu af öllu frá viðtölum, fréttamennsku og dagskrárgerð til reksturs, mannauðsmála, markaðsmála og stefnumótunar.“

Hilda Jana sat svo átta ár í bæjarstjórn Akureyrar og lét af þeim störfum síðastliðið vor. „Þar aflaði ég mér reynslu af sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu, meðal annars í bæjarstjórn, bæjarráði og ýmsum stjórnum og nefndum. Í dag starfa ég svo sem samskiptastjóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Mig langaði að nýta þekkingu mína og reynslu í þágu starfsemi sem skiptir samfélagið mjög miklu máli og þar sem ég gæti haft jákvæð áhrif og látið gott af mér leiða. Í því starfi nýtist fjölbreyttur bakgrunnur minn vel.“

Verðmætt að vita hvað við vitum lítið

„Ég vissi að mig langaði að ná mér í háskólagráðu en var ekki viss um hvað ég vildi læra. Kennaranámið var það sem mér þótti komast næst áhuga mínum á sálfræði og á forvarnarstarfi með ungmennum. Þar sem fjarnám í því var ekki í boði og námsframboð við HA mun minna en nú er varð kennaranámið fyrir valinu og það var um margt gott nám. Ég hafði sérstaklega mikinn áhuga á siðfræði og heimspeki hjá Kristjáni Kristjánssyni, sem var frábær kennari.“

Námið hafði einnig djúpstæð áhrif á hana persónulega. „Þegar ég horfi til baka held ég að eitt það verðmætasta hafi verið að átta mig á því hvað ég vissi lítið og veit enn lítið. Kannski má segja að námið hafi á sama tíma fært mér ákveðna auðmýkt en um leið aukna trú á sjálfri mér.“

Hjálpartæki urðu tilefni heilmikilla umræðna

Hilda Jana var á námsárunum formaður Félags stúdenta við HA, sem hún segir hafa verið mikla og góða reynslu og í raun alls ekki minna verðmæt en námið sjálft. „Eitt af hlutverkum félagsins var að kynna háskólann og mig langaði að sinna því vel. Ég hafði því samband við Gísla Gunnlaugsson hjá Aksjón og ræddi við hann um að gera þætti um háskólann. Úr varð að ég gerði þættina Háskólahornið með Baldvini Z. og þar féll ég fyrir fjölmiðlabransanum. Félagsstarfið gaf mér líka reynslu af því að beita mér fyrir hagsmunum annarra og var þannig ákveðinn undanfari þátttöku minnar í pólitík.“

Það var fleira sem kom til í starfi hennar sem formaður og eitt atvik situr eftir þegar Hilda Jana er beðin að rifja upp sögu frá námsárunum. „Langeftirminnilegasta atvikið tengist afsláttarkorti sem við í Félagi stúdenta ætluðum að gefa út. Besta tilboðið kom frá fyrirtæki sem seldi hjálpartæki ástarlífsins og við ætluðum að taka því.Þáverandi stjórnendum skólans þótti það hins vegar alls ekki sæmandi virðulegum háskóla. Ég var ósammála og upp spruttu heilmiklar umræður. Ég spurði þá, auðvitað til að ögra aðeins, hvort matvöruverslanir mættu þá kannski ekki heldur auglýsa, þar sem þær seldu ýmsar „ósæmilegar“ vörur eins og barnaolíu og agúrkur. Flestum þeirra var ekki sérlega skemmt. Úr varð að skólinn sjálfur ákvað að borga fyrir auglýsinguna, tíu krónum meira en tilboðið sem var á borðinu og því komst þessi ágæta hjálpartækjaverslun aldrei á stúdentaskírteinið.“

Verið opin fyrir tækifærunum

Þegar Hilda Jana er spurð hvaða þrjú orð komi fyrst upp í hugann þegar hún hugsar um HA svarar hún: „Tækifæri, farsæld, samfélag.“

Hún á jafnframt einföld en mikilvæg heilræði til þeirra sem eru að huga að háskólanámi: „Munið að hafa gaman af þessu. Það getur svo margt breyst á leiðinni og aldrei hægt að vita hvert námið og lífið mun leiða. Ég fór í kennaranám og fann þar leiðina inn í fjölmiðla, pólitík og að lokum til starfa á sjúkrahúsi. Menntunin hefur alltaf nýst mér, þótt starfsvettvangurinn hafi orðið annar. Verið opin fyrir tækifærunum og hlustið líka á hjartað, ekki bara heilann. Munið svo alltaf að vera góð við fólkið í kringum ykkur og ykkur sjálf.“

Eitt besta heilræði sem Hilda Jana hefur fengið fylgir að lokum:

„Þegar ég stend á krossgötum eða tekst á við eitthvað krefjandi spyr ég mig: Hvað myndi ég ráðleggja barninu mínu í þessari stöðu? Þá verða svörin oft svo miklu skýrari og auðveldara að mæta sjálfri mér með sömu umhyggju og ég myndi sýna barninu mínu.“

Við þökkum Hildu Jönu fyrir spjallið og óskum henni velfarnaðar í starfi. Fyrir áhugasöm má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina HA.