Veröldin séð í nýju ljósi

Í þessari viku eru stúdentar í fjölmiðlafræði við HA í heimsókn í Ríga og eru að drekka í sig fróðleik um fjölmiðla í Lettlandi, menningu og hvernig það er að lifa í skugga stríðsátaka
Veröldin séð í nýju ljósi

Í þessari viku fagna Lettar á hefðbundinn hátt sjálfstæði sínu með dansi, söng og blómaskreytingum. Þessa sömu viku eru stúdentar í fjölmiðlafræði við HA í heimsókn í Ríga og eru að drekka í sig fróðleik um fjölmiðla í Lettlandi, menningu og hvernig það er að lifa í skugga stríðátaka. Stúdentar í hópnum segjast vera að fá svör við spurningum sem hafi aldrei komið upp í hugann áður og heyrt sögur um baráttu Letta fyrir sjálfstæði, sögur sem kalli fram tár en líka gleði. Orri Már Arnarson segir:

Magnað að fá að fræðast um sögu landsins og upplifa þýðingu sjálfstæðis fyrir fólk.

Yfirskriftin á námskeiðinu er Framtíð í skugga stríðsátaka. Tilgangurinn með þessu sex eininga valnámskeiði er að kynna fjölmiðlafræðinemum störf fólks sem býr við allt annað starfsumhverfi á fjölmiðlum en ríkir á Íslandi. Sumir viðmælendanna eru á flótta frá Rússlandi, aðrir eru að undirbúa sig fyrir störf á fjölmiðlum og enn aðrir eru að reyna að stuðla að aukinni vitneskju almennings um stöðuna í heimsmálunum. Díana Marín Sigurgeirsdóttir segir:

Áhugavert, fræðandi, skemmtilegt og einstakt námskeið – eitthvað sem enginn má missa af.

Stúdentar eru líka að safna efni í viðtöl sem þeir vonast til að fjölmiðlar á Íslandi vilji nýta sér. Hver dagur er skipulagður með áhugaverðum heimsóknum og vinnufundum til að undirbúa viðtöl og úrvinnslu. Stúdentar fengu styrk frá Nordplus til þess að standa straum af kostnaði við ferð og upphaldi í Ríga. Umsjón með námskeiðinu hafa Sigrún Stefánsdóttir og Skúli Bragi Geirdal.  

Umsagnir stúdenta:

  • „Þetta hefur verið bæði skemmtilegt og reynsluríkt – þetta er ferð sem býr til minningar,“ Sonja Lind Guðmundsdóttir
  •  „Áhugaverðir fyrirlestrar sem fá mann til þess að sjá veröldina í nýju ljósi,“ Eyþór Bjarnason
  • „Æðislegt, bæði til þess að mynda tengsl við samnemendur og til að upplifa aðra menningu,“ Hilmar Örn Sævarsson
  • „Námskeiðið er rosalega skemmtilegt og lærdómsríks. Geggjaður nemendahópur,“ Elmar Sveinn Einarsson
  • „Gaman að læra um menninguna í Ríga og söguna, góð reynsla,“ Sigrún Hekla Sigmundsdóttir
  • „Ég mæli eindregið með þessari borg og þessu námskeiði,“ Kristófer Páll Sigurðsson
  • „Ég er vina-, visku- og reynslumeiri en ég var fyrir þessa námsferð,“ Ásrún Telma Hannesdóttir