Ný-Piagetísk nálgun á vitsmunaþroska barna

11. mars 2026 kl. 09:30-11:40
Opinn fyrirlestur í Sálfræðideild

Sálfræðideild býður öll hjartanlega velkomin á opinn fyrirlestur um vitsmunaþroska barna.

Í erindinu mun Dr. Sergio Morra, prófessor við háskólann í Genoa kynna og ræða ný-Piagetíska nálgun á vitsmunaþroska. Áhersla verður lögð á fræðilegar undirstöður nálgunarinnar og hvaða þýðingu hún hefur fyrir skilning okkar á hugsun og vitsmunalegum þroska barna.

  • Viðburðurinn fer fram á ensku í stofu í stofu M202 og verður einnig streymt frá honum hér á Zoom

Viðburðurinn er haldinn sem hluti af námskeiðinu Þroskasálfræði (ÞSÁ0156)

Öll hjartanlega velkomin!