3. mars 2026 kl. 10:00
Meistaravörn í starfrænni heilbrigðistækni
Velkomin á meistaravörn í starfrænni heilbrigðistækni við HA í samstarfi við HR
Sigurborg Bjarnadóttir meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni mun verja lokaverkefni sitt:
Stafræn heilbrigðistækni og lyfjaumsýsla á hjúkrunarheimilum á Íslandi: Upplifun heilbrigðisstarfsfólks á verkferlum og lyfjaöryggi – Tilviksrannsókn á lyfjaávísanakerfinu eMed
Vörnin hefst kl. 10:00 í stofu M101 og eru öll hjartanlega velkomin!
Ágrip
Lyfjaumsýsla á hjúkrunarheimilum getur verið flókið og margþætt ferli í umönnun eldra fólks. Með tilkomu stafrænna lausna hafa skapast ný tækifæri til að styðja við öruggari og skilvirkari verkferla í lyfjaávísunum og samskiptum við fjölskömmtunarapótek.
Rannsóknin er eigindleg tilviksrannsókn sem skoðar upplifun hjúkrunarfræðinga og lækna af notkun rafræna lyfjaávísanakerfisins eMed á hjúkrunarheimilum á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á hvernig kerfið styður við lyfjaöryggi, verkferla, upplýsingayfirsýn og samskipti milli fagstétta og við fjölskömmtunarapótek.
Niðurstöður benda til þess að kerfið stuðli að aukinni yfirsýn og rekjanleika og efli samhæfingu í lyfjaferlinu. Jafnframt kemur fram að notagildi, þjálfun og hversu vel kerfið fellur að daglegum verkferlum hafi veruleg áhrif á hvernig það nýtist í klínísku starfi.
Rannsóknin varpar ljósi á hvernig stafrænar lausnir móta daglegt starf á hjúkrunarheimilum og undirstrikar að tæknilausnir einar og sér duga ekki .Samspil tækni, verkferla og faglegs mats er lykilatriði til að tryggja raunverulegan ávinning í lyfjaöryggi.
Öll velkomin!