Það þarf þorp: Seinfærir foreldrar og glíman við kerfið

11. nóvember 2025 kl. 16:00
Dr. Sara Stefánsdóttir, iðjuþjálfi og lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild kynnir doktorsrannsókn sína í fötlunarfræðum.
Í rannsókninni er rýnt í hvernig seinfærum foreldrum á Íslandi er veittur stuðningur í ljósi þróunar á réttindum fatlaðs fólks. Gögnum var m.a. safnað með viðtölum við foreldra, fjölskyldu þeirra, réttindagæslumenn fatlaðs fólks, og starfsmenn barnaverndar og félagsþjónustu. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig sú þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum áratugum á vettvangi mannréttinda er ekki fullnægjandi til þess að ryðja úr vegi samfélagslegum og kerfislægum hindrunum þegar kemur að seinfærum foreldrum.
 
Bakarís-fyrirlestrar eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar og Brauðgerðarhúss Akureyrar. Markmið þeirra er að kynna verkefni sem fólk hefur unnið að hjá AkAk, bjóða upp á viðburði í Sunnuhlíð og gefa bæjarbúum tækifæri til að fræðast og spjalla um fjölbreytt viðfangsefni.
 
Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían eru í góðu samstarfi við að miðla, nýta og búa til vettvanga varðandi vísindi og fræði. 
 
Öll hjartanlega velkomin!