10. október 2025 kl. 10:00-13:00
Sex útskriftarnemar í heilbrigðisvísindum kynna verkefni sín
Öll velkomin á opna málstofu meistaranema í heilbrigðisvísindum!
Föstudaginn 10. október munu sex meistaranemar í heilbrigðisvísindum kynna lokaverkefni sín á opinni málstofu. Málstofan er öllum opin og hvetjum við áhugasöm til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Málstofan fer fram í stofu M102 og verður einnig streymt frá henni hér.
Meistaraverkefnin sem verða kynnt:
10.00 - Eva Björk Gunnarsdóttir

Viðhorf og reynsla hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni af því að veita líknar- og lífslokahjúkrun
Leiðbeinandi: Elísabet Hjörleifsdóttir
10.30 - Hrefna Jónsdóttir

Þetta var klárlega ein af mínum bestu ákvörðunum: Reynsla fólks af því að fara í efnaskiptaaðgerð, helstu áskoranir og áhrif á sjálfsmynd og sálfélagslega líðan tveimur til fimm árum eftir aðgerð
Leiðbeinandi: Ólöf Ása Ólafsdóttir
Meðleiðbeinandi: Sigfríður Inga Karlsdóttir
11.00 - Júlía Ósk Jóhannsdóttir

Tengsl meðferðarsambands og fræðslu fyrir aðstandendur við lífsgæði einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
Leiðbeinandi: Gísli Kort Kristófersson
Meðleiðbeinandi: Eva Charlotte Halapi
11.30 - Lára Baldvinsdóttir

Reynsla hjúkrunarfræðinga af óhagstæðum eða alvarlegum atvikum í starfi. Prófun á íslenskri útgáfu spurningalistans Second Victim Experience and Support Tool – Revised (SVEST-R)
Leiðbeinandi: Elísabet Hjörleifsdóttir
Meðleiðbeinandi: Guðmundur Kristján Óskarsson
12.00 - Magnea Ingólfsdóttir

Áhrif núvitundar á streitu, kvíða og lífsánægju hjá starfsfólki á fjölmennum vinnustað
Leiðbeinandi: Gísli Kort Kristófersson
Meðleiðbeinandi: Elín Díanna Gunnarsdóttir
12.30 - Sæbjörg Lára Másdóttir

Fjölskylduhjúkrun í líknar- og lífslokameðferð á bráðalegudeild: Reynsla og upplifun aðstandenda
Leiðbeinandi: Ásta Bjarney Pétursdóttir
Meðleiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir
Öll velkomin!