Fundur var haldinn fimmtudaginn 26. febrúar 2026 á Sólborg, Norðurborg.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:30
Mætt voru auk hennar:
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Einnig mætt:
Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu sem ritar fundargerð
Gestir:
Helga María Pétursdóttir, forstöðumaður fjármála og greininga
Hólmar Erlu Svansson, framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu
Rektor kynnti dagskrá og óskaði eftir að eitt mál yrði sett á dagskrá undir bókfærð mál til samþykktar (Kennsluskrá HA skólarárið 2026-2027) sem ekki var að finna á útsendri dagskrá. Var það samþykkt án athugasemda.
1. Fjármál og rekstur
2601068
Hólmar Erlu Svansson og Helga María Pétursdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Helga María kynnti fyrir háskólaráði nýtt skýrsluform sem sýnir rekstrarstöðu háskólans. Nýja skýrsluformið er unnið í PowerBI og gefur betri innsýn í rekstur skólans samanborið við eldra form sem stuðst hefur verið við fram til þessa. Háskólaráð ræddi nýja skýrsluformið og hvaða auknu möguleika meðlimir ráðsins hafi til að glöggva sig á rekstri háskólans með þessari nýju nálgun.
2. Skipan afmælisnefndar vegna 40 ára afmælis Háskólans á Akureyri
2602045
Rektor kynnti fyrir háskólaráði tillögu að skipan afmælisnefndar í tengslum við 40 ára afmæli Háskólans á Akureyri 5. september 2027. Hefð er fyrir skipan slíkrar nefndar til að fagna stórafmælum háskólans. Síðast var skipuð samskonar nefnd í tengslum við 30 ára afmælið.
Háskólaráð samþykkir tillögu rektors og skipar eftirfarandi í afmælisnefnd í tengslum við 40 ára afmæli háskólans:
Sólveig María Árnadóttir formaður, án tilnefningar
Bára Sif Sigurjónsdóttir, án tilnefningar
Þorlákur Axel Jónsson, tilnefndur af hug- og félagsvísindasviði
Steingrímur Jónsson, tilnefndur af heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði
Aldís Mjöll Hlynsdóttir, tilnefnd af Stúdentaráði Háskólans á Akureyri
Til vara:
Hildur Sólveig Elvarsdóttir, tilnefnd af hug- og félagsvísindasviði
Árún Kristín Sigurðardóttir, tilnefnd af heilbrigðis-, viðskipta og raunvísindasviði
Aðalbjörn Jóhannsson, tilnefndur af Stúdentaráði Háskólans á Akureyri
3. Breytingar á starfsréttindanámi í iðjuþjálfunarfræði
2511060
Háskólaráði barst nýverið erindi frá sviðsforseta heilbrigðis,- viðskipta- og raunvísindasviðs og deildarforseta iðjuþjálfunarfræðideild háskólans þar sem þess er óskað að fyrirvara sem settur var á samþykki háskólaráðs fyrir breytingum á starfsréttindanámi í iðjuþjálfunarfræði á 478. fundi háskólaráðs verði aflétt. Í fyrirvara háskólaráðs fólst að samþykkt breytingarinnar væri háð „að gerð væri breyting á reglugerð nr. 1221/2012, um menntun, réttindi og skyldur iðjuþjálfa sem hljóta starfsleyfi“.
Háskólaráð telur að góð rök séu færð fyrir því að aflétta fyrirvaranum þrátt fyrir að breyting á reglugerð nr. 1221/2012 hafi enn ekki birst í Stjórnartíðindum. Samþykkir ráðið að aflétta fyrirvaranum.
4. Nýtt nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
2511060
Háskólaráð ræddi áfram um tillögu um nýtt nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf, en málið var áður á dagskrá 478. fundi háskólaráðs.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri þakkar fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í að undirbúa klínískt nám á grunnstigi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf. Stjórnvöld hafa undanfarið sett aukið fjármagn í úrræði til að takast á við fíknisjúkdóma, bæði vegna áfengis og vímuefna. Telur háskólaráð að kandídatar sem klára umrætt nám muni styrkja forvarnar- og meðferðarúrræði um allt land. Háskólinn á Akureyri stendur frammi fyrir áskorunum í tengslum við fjármögnun háskólans og af þeim sökum var ákvörðun um að hefja kennslu á þessari námsleið frestað á 478. fundi háskólaráðs. Vonir háskólaráðs standa til þess að hægt verði að skapa svigrúm í rekstri háskólans þannig að kennsla í grunnnámi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf hefjist eigi síðar en haustið 2027.
5. Siðanefnd Háskólans á Akureyri – verkferlar og verklag
2408085
Rektor kynnti fyrir háskólaráði erindisbréf siðanefndar Háskólans á Akureyri 2024-2026. Rætt var um verkferla og verklag siðanefndarinnar, m.a. í tengslum við opinbera umræðu um siðanefndir hjá íslenskum háskólum.
6. Greining á stoðþjónustu og stjórnsýslu Háskólans á Akureyri
Rektor kynnti fyrir háskólaráði afrakstur vinnu sem ráðgjafi hefur unnið undanfarna mánuði við að greina styrkleika og veikleika á stjórnskipulagi stoðþjónustu og stjórnsýslu Háskólans á Akureyri. Þessar niðurstöður hafa þegar verið kynntar fyrir stjórnendum háskólans. Háskólaráð ræddi niðurstöðurnar.
7. Bókfærð mál til samþykktar
- Kennslualmanak HA skólaárið 2026-2027 2602012
- Kennsluskrá HA skólarárið 2026-2027 2602074
- Reglur Rannsóknarmiðstöðvar í málefnum innflytjenda við Háskólann á Akureyri 2510088
8. Til fróðleiks
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:54.