Dagana 12.–14. október komu 23 skólastjórnendur og háskólarannsakendur frá Íslandi, Grænlandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð saman á Akureyri til þátttöku í vinnustofu rannsóknar- og þróunarverkefnisins CANDLES (Sustainable Nordic and Arctic Educational Leadership in Times of Opportunities and Challenges). Þátttakendur miðluðu reynslu af skólastarfi við ólíkar aðstæður og lögðu grunn að þróunarverkefnum sem skólastjórnendur munu vinna að í eigin skólum með stuðningi rannsakenda.
Háskólinn á Akureyri leiðir verkefnið undir stjórn Sigríðar Margrétar Sigurðardóttur, dósents og deildarforseta Kennaradeildar. Í fyrri frétt HA var fjallað um verkefnið og framhaldsstyrk þess. Vinnustofan markaði næsta skref í samstarfinu, þar sem skólastjórnendur og rannsakendur hófu sameiginlega vinnu að skólaþróun og gagnaöflun.
Sameiginleg viðfangsefni þvert á landamæri
Vinnustofan hófst í Háskólanum á Akureyri þar sem skólastjórar kynntu skóla sína og aðstæður. Á dagskrá voru fræðileg erindi og vinnustofur um sérstöðu skólastarfs í dreifbýli, sjálfbæra menntaforystu og starfendarannsóknir.

Áhersla var lögð á að efla tengsl þátttakenda og ræða hvernig reynsla úr ólíkum skólum og samfélögum gæti nýst í þróunarstarfinu. Umræðurnar voru jafnframt hluti af gagnasöfnun rannsóknarinnar, þar sem skólastjórnendur deildu sýn sinni á þær aðstæður sem styðja við eða hindra sjálfbæra menntaforystu.
Heimsókn í Reykjahlíðarskóla
Á öðrum degi heimsótti hópurinn Reykjahlíðarskóla við Mývatn. Huld Aðalbjarnardóttir skólastjóri tók á móti gestunum, kynnti skólastarfið og sýndi þeim skólann.
Heimsóknin veitti þátttakendum innsýn í starf fámenns skóla á landsbyggðinni og gaf tilefni til samanburðar og umræðu um tækifæri og áskoranir skóla í dreifðum byggðum. Einnig gafst færi á að kynnast nærumhverfi Mývatns.
Þrátt fyrir dýrlegt veður fyrstu tvo dagana setti veður þriðja daginn nokkurt strik í reikninginn og þurfti að stytta dagskrána þar sem stærstur hluti hópsins hélt suður á leið að kvöldi annars dags. Hluti þátttakenda, meðal annars frá Grænlandi og Íslandi, gat þó haldið áfram vinnu við verkefnið á Akureyri og þökk sé tækninni verður síðasti dagurinn færður á netið.
Samstarfið heldur áfram í skólunum
Næstu skref felast í því að skólastjórnendur útfæri og vinni að þróunarverkefnum í eigin skólum í samstarfi við rannsakendur. Stuðst verður við starfendarannsóknir, þar sem skólastjórnendur rýna í eigið starf, prófa leiðir til umbóta og meta reynsluna með stuðningi rannsakenda.

Þannig tengjast rannsóknir og skólaþróun með beinum hætti. Reynslan úr skólunum verður hluti af rannsókninni og nýtist til að dýpka skilning á sjálfbærri menntaforystu í dreifbýli og á norðurslóðum.
CANDLES hlaut styrk úr norrænu samstarfsáætluninni Nordic Arctic Programme, sem er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og í umsjón NAPA, Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi.