Nýtt tölublað af Nordicum-Mediterraneum

Fjöldi ritrýndra fræðigreina og ritrýnd ágrip erinda og veggspjalda
Nýtt tölublað af Nordicum-Mediterraneum

Tímaritið Nordicum-Mediterraneum í ár inniheldur sjö nýjar ritrýndar fræðigreinar sem fjalla um fjölbreytt og ólík málefni frá Norðurlöndum og Miðjarðarhafssvæðinu. Greinarnar fóru í gegnum hefðbundið ferli tvíblindrar ritrýni. Auk þess birtist þar ein grein til viðbótar sem á rætur að rekja til ráðstefnunnar Löggæsla og samfélagið sem haldin verður á Akureyri í 9. skipti næsta haust og fór hún jafnframt í gegnum sama hefðbundna ferli tvíblindrar ritrýni.

Enn fremur eru birt fjölmörg ritrýnd ágrip erinda og veggspjalda sem kynnt verða á 6. Sjálfbærniráðstefnunni, sem Háskólinn á Akureyri mun halda í apríl. Þar má einnig finna valin ráðstefnurit úr opnu málþingi undir heitinu „Humour and Culture“, sem haldið var í Amtsbókasafninu á Akureyri í nóvember síðastliðnum og þar sem húmorfræðingar, grínistar, rithöfundar og aðrir fræðimenn komu að.

Fimm bókadómar og ein ritdómsritgerð um nýlegar útgáfur eru í ritinu, auk fjögurra annarra framlaga um ýmis efni, svo sem hátíðarhöld í tilefni af rúmlega tuttugu ára afmæli Nútímafræða við Háskólann á Akureyri. Ritstjórn tímaritsins vill koma á framfæri þakklæti til allra höfunda.

Tímaritið Nordicum-Mediterraneum má nálgast hér.