Eins og áður hefur verið sagt frá var starfsfólk Háskólans á Akureyri og norðurslóðastofnana á háskólasvæðinu með mikla viðveru á UArctic Congress 2026 í Þórshöfn í Færeyjum. Fulltrúar HA komu að fjölbreyttum málstofum, erindum og veggspjaldakynningum á ráðstefnunni, sem var sú stærsta sem haldin hefur verið um málefni norðurslóða til þessa. Þar á meðal var prófessor Thanh Viet Nguyen, prófessor við Auðlindadeild, sem stýrði málstofu og kynnti rannsóknir á sviði sjávarútvegshagfræði, sjálfbærni á norðurslóðum og vistkerfismiðaðrar stjórnunar hafsvæða.
Ein stærsta ráðstefna um málefni norðurslóða
Ráðstefnan er ein stærsta ráðstefna um málefni norðurslóða sem haldin hefur verið á Norðurlöndum og sóttu hana um 1.400 þátttakendur úr háskólasamfélaginu, stjórnsýslu, atvinnulífi, samtökum frumbyggja og alþjóðastofnunum.
Hafa loftlagsbreytingar áhrif á framleiðni?
Thanh skipulagði málstofuna „Blue Economy Strategies for Enhancing Productivity and Efficiency in Arctic Marine Resources and Sectors“ ásamt Yajie Liu. Þar var fjallað um framleiðni í sjávarútvegi, vistkerfismiðaða stjórnun, sjálfbærni fiskeldis og stjórnun hafsvæða á norðurslóðum.
Málstofan vakti góðar umræður, meðal annars um vistkerfismiðaða stjórnun íslenskra þorskveiða, áhrif loftslagsbreytinga á framleiðni í sjávarútvegi og sjálfbærniáskoranir í fiskeldi.
Tvö rannsóknarerindi um framleiðni og veiðistjórnun
Auk þess að stýra málstofunni kynnti Thanh tvö rannsóknarverkefni. Annað þeirra er um framleiðniaukningu í norskum þorsktogurum og áhrif umhverfis- og rekstraraðstæðna á skilvirkni í sjávarútvegi.
Hitt erindið, sem hann vann ásamt Stefáni Bjarna Gunnlaugssyni og Hreiðari Þór Valtýssyni við Háskólann á Akureyri, fjallaði um rannsókn á aflaviðmiðum og stofnstærðum í íslenskum þorskveiðum á tímabilinu 1997–2023.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar sýna að afli í íslenskum þorskveiðum er nálægt viðmiðum um hámarksarðsemi, á meðan lífmassi stofnsins er enn undir því sem telst hagkvæmt til lengri tíma. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að bætt markmiðasetning í veiðistjórnun geti aukið langtímahagnað í greininni.
Jafnvægi milli framleiðni, vistkerfa og loftslagsóvissu
„Umræðurnar sýndu að framtíðarstjórnun hafsvæða á norðurslóðum þarf í auknum mæli að ná jafnvægi milli efnahagslegrar framleiðni, þanþols vistkerfa og óvissu tengdri loftslagsbreytingum,“ sagði Dr. Nguyen.
Þátttaka hans á ráðstefnunni styrkir alþjóðlegan sýnileika rannsókna við Háskólann á Akureyri á sviði sjávarútvegshagfræði, sjálfbærni á norðurslóðum og vistkerfismiðaðrar stjórnunar hafsvæða.
Lesa má meira um þátttöku Háskólans á Akureyri á UArctic Congress 2026 í fyrri frétt: Fjölmenn þátttaka frá HA á stærstu vísindaráðstefnu um norðurslóðir sem haldin hefur verið til þessa.