Tíu ár frá því að grunnnám lögreglumanna hérlendis færðist upp á háskólastig

Hefur styrkt fagvæðingu lögreglunnar
Tíu ár frá því að grunnnám lögreglumanna hérlendis færðist upp á háskólastig

Í haust eru tíu ár frá því að fyrstu stúdentarnir hófu diplómanám fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri, en lögreglunám hérlendis var fært upp á háskólastig árið 2016. Með breytingunni varð lögreglunám að háskólanámi og aukin áhersla var lögð á fagþekkingu, fjölbreytta hæfni og gagnrýna ígrundun. Þannig hefur breytingin styrkt tengsl milli fræðilegrar þekkingar og lögreglustarfsins.

Á þeim áratug sem er liðinn hefur lögreglunámið fest sig í sessi og rannsóknir benda til þess að færsla grunnnáms lögreglumanna á háskólastig hafi styrkt fagvæðingu og menntastig lögreglunnar, hjálpað til við að fjölga lögreglumönnum, aukið hlutdeild kvenna í lögreglunni og breytt áherslum á þá þekkingu og hæfni sem lögreglumenn þurfa í starfi.

Lögreglustarfið sífellt flóknara

Líkt og í nágrannalöndunum voru helstu markmið umbóta á lögreglumenntun hérlendis með færslu á háskólastig að efla lögregluna sem fagstétt og búa lögreglumenn undir sífellt flóknari verkefni í margbreytilegum heimi. Lögreglustarfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum og nýjar áskoranir, meðal annars á sviði netglæpa og alþjóðlegs samstarfs, gera kröfur um víðtæka þekkingu og fjölbreytta hæfni.

Fjölbreyttar námsleiðir í lögreglufræði

Háskólinn á Akureyri ber ábyrgð á diplómanáminu fyrir verðandi lögreglumenn og bóklega hluta lögreglunámsins meðan Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu (MSL) sér um verklega hluta námsins og inntökuferlið. Lögreglunámið er tveggja ára, 120 ECTS eininga diplómanám. Þá geta brautskráðir lögreglumenn jafnframt bætt við sig 60 ECTS einingum og ljúka þá BA prófi í lögreglu- og löggæslufræði. Einnig er í boði við HA 120 ECTS eininga diplómanám fyrir starfandi lögreglumenn sem luku prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Auk þess að sjá um verknámið sinnir MSL einnig framhalds- og símenntun starfandi lögreglumanna sem og menntun landamæravarða og fangavarða.

HA ber lagalega ábyrgð á grunnnámi verðandi lögreglumanna en í reynd bera námsbraut HA í lögreglufræði og MSL sameiginlega ábyrgð á hönnun og framkvæmd námsins. Einnig lúta lögreglunemar bæði siðareglum lögreglu og reglum HA. Vert er að nefna að í dag er um helmingur allra starfandi lögreglumanna hérlendis með menntun sína af háskólastigi.

Fræðileg og verkleg þekking mætast

Færsla lögreglunáms á háskólastig bar brátt að en starfsfólk námsbrautar í lögreglufræði við HA og starfsfólk MSL hefur unnið hörðum höndum að því að efla lögreglunámið og samþætta sem best fræðilegt og verklegt nám. Mikið hefur áunnist í þeim efnum þó alltaf megi gera betur.

Eyrún Eyþórsdóttir og Sigurður Kristinsson

„Það eru forréttindi að fá að vinna með þeim breiða hópi kennara og rannsakenda sem koma að lögreglufræðinni. Þar mætast annars vegar ómetanleg þekking og reynsla af vettvangi lögreglustarfsins og hins vegar sérþekking af fræðasviðum félagsvísinda, lögfræði og siðfræði. Með þéttri samvinnu mótar þessi hópur lögreglufræði sem spennandi fag. Markmiðið er að auka sífellt þekkinguna og bjóða upp á menntun sem býr lögreglunema undir vandasöm störf og frekari starfsþróun,“ segir Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki við HA, sem í dag sinnir starfi brautarstjóra námsbrautar í lögreglufræði. Lengst af hefur Eyrún Eyþórsdóttir, dósent í lögreglufræði, gegnt stöðu brautarstjóra námsbrautar í lögreglufræði.


Vinnufundur námsbrautar í lögreglufræði við HA og starfsfólks MSL í húsnæði MSL á dögunum  

Löggæsla og samfélagið mikilvægur samstarfsvettvangur

Mikilvægur liður í samstarfi námsbrautar í lögreglufræði og MSL er árviss ráðstefna, Löggæsla og samfélagið, sem haldin verður í níunda sinn 30. september og 1. október næstkomandi. Ráðstefnan er vettvangur þar sem fagfólk og fræðafólk reifa málefni löggæslu í víðri merkingu og er orðin nokkurs konar uppskeruhátíð fyrir lögregluna og annað áhugafólk um löggæslu. Ráðstefnan er haldin af Rannsóknarsetri í lögreglufræði við HA (RLHA) sem er sameiginlegur vettvangur til rannsókna fyrir starfsfólk MSL og HA sem og annarra löggæslustofnana.

Rannsakaði tíu ára þróun lögreglunámsins


Ólafur Örn eftir doktorsvörn sína, hann er með rauða bindið

Þessu tengt er gaman að nefna að Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður MSL frá stofnun árið 2016 og lektor við Rannsóknasetur í lögreglufræði við HA, lauk doktorsprófi á dögunum og fjallar doktorsrannsókn hans einmitt um umbætur á lögreglunámi hérlendis.

„Samstarf HA og MSL hefur verið lykillinn að uppbyggingu lögreglunámsins síðustu tíu ár. Styrkur þess felst ekki síst í því að leiða saman fræðilega þekkingu háskólans og reynslu og starfsþekkingu lögreglunnar. Doktorsrannsókn mín gaf mér tækifæri til að skoða þessa þróun með gagnrýnum hætti og niðurstöðurnar undirstrika að fagleg hæfni lögreglumanna verður einmitt til í samspili náms og starfs. Næsta skref er því að byggja enn frekar á þessu samstarfi og samþætta betur fræðilegt og verklegt nám,“ segir Ólafur Örn að lokum.