Grétar Þór flutti tvö erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Róm

Heimastjórnir og viðbrögð við Covid meðal efnis í erindunum
Grétar Þór flutti tvö erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Róm

Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, flutti tvö erindi á árlegri ráðstefnu European Group for Public Administration (EGPA), sem fór fram í Sapienza-háskólanum í Róm í ágúst síðastliðnum.

Yfirskrift ráðstefnunnar var Public Governance for the Common Good: Human Intelligence Serving the Global Community. Þar komu saman fræðafólk, sérfræðingar og fulltrúar opinberrar stjórnsýslu til að ræða nýjustu rannsóknir og þróun á sviði opinberrar stjórnsýslu, stefnumótunar og stjórnarhátta.

Lærdómurinn af COVID-19 – erum við tilbúin í næsta faraldur?

Fyrra erindi Grétars bar yfirskriftina Home-rule governance in Múlaþing. An institutional and governance innovation as a part of an amalgamation process of four municipalities in Iceland. Þar fjallaði hann um heimastjórnir Múlaþings, sem komið var á fót í tengslum við sameiningu fjögurra sveitarfélaga, og reynsluna af starfsemi þeirra. Heimastjórnirnar voru jafnframt bornar saman við hverfisnefndir og hverfisráð annars staðar á Íslandi.

Síðara erindið, Learning from the COVID-19 crisis. What has been evaluated and put into practice?, fjallaði um þann lærdóm sem draga má af kórónuveirufaraldrinum, hvernig viðbrögð stjórnvalda hafa verið endurmetin og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að bregðast við sambærilegum farsóttum í framtíðinni.

Erindið byggðist að stórum hluta á niðurstöðum norræna rannsóknarverkefnisins POLYGOV, sem Grétar tók þátt í á árunum 2022–2025. Í verkefninu voru viðbrögð stjórnvalda á Norðurlöndunum við kórónuveirufaraldrinum borin saman. 

Áhugasöm geta kynnt sér rannsóknarverkefnið POLYGLOV með því að smella hér.