Stúdentar kynna fjölbreytt verkefni og Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri Maven verður með erindi
Öll eru velkomin á Tækninámsdag HA föstudaginn 15. maí á milli klukkan 12 og 15 í Miðborg Háskólans á Akureyri. Þar munu stúdentar í tæknifræði og tölvunarfræði kynna fjölbreytt verkefni sem þeir hafa unnið að í náminu. Einnig mun Helgi Hrafn Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Maven vera með erindið “Úr tölvunarfræði við HA í stofnun fyrirtækisins Maven” klukkan 12:30 í stofu M102.
Ný 50 metra sundlaug keyrð á glatvarma?
Á Tækninámsdeginum verða stúdentar með bása og plaköt þar sem gestum gefst kostur á að kynna sér verkefnin, spyrja spurninga og ræða við stúdenta um námið og reynslu þeirra. Meðal verkefna sem verða til sýnis eru lausnir tengdar glatvarma til sundlaugarkyndingar, róbótum, vefsíðugerð, sólarorku á þaki HA, iðntölvum og sjálfvirkni, vefforritun, framenda- og bakendalausnum og starfsnámi.
Starfsfólk HA verður einnig á staðnum og tekur á móti áhugasömum sem vilja kynna sér nám í tæknifræði og tölvunarfræði. Námið er í boði við HA í samstarfi við HR og sameinar öflugt námsefni HR við sterkt námssamfélag og stuðning á staðnum við Háskólann á Akureyri.
Ólafur Jónsson verkefnastjóri segir að það skipti miklu máli að fólk geti sótt tækninám í sínu nærumhverfi. „Aðgengi að námi í tæknifræði og tölvunarfræði á landsbyggðinni er lykilatriði, bæði fyrir stúdenta og samfélagið allt. Þegar ungt fólk getur stundað hagnýtt og krefjandi tækninám án þess að flytja burt skapast ný tækifæri, tengslin við atvinnulífið á svæðinu styrkjast og þekkingin verður eftir í nærumhverfinu,“ segir Ólafur.
Mikilvægi náms í nærumhverfi hefur einnig komið skýrt fram í aukinni þátttöku liða frá Norður- og Austurlandi í Forritunarkeppni framhaldsskólanna og nú síðast var metþátttaka af svæðinu í keppninni.
Snjöll mælaborð, viðskiptagreind og lífið
Helgi Hrafn Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Maven, mun í erindi sínu segja frá sinni reynslu af því að stofna fyrirtæki í hugbúnaðargeiranum á Íslandi.
Helgi Hrafn er HA-ingur sem brautskráðist úr tölvunarfræði árið 2006 og starfaði sem forritari til átta ára. Hann sá tækifæri í viðskiptagreind, gervigreind og þróun snjallra mælaborða og ákvað í framhaldi að stofna Maven. Í apríl síðastliðnum var Maven selt til Origo. Hann mun lýsa þessari vegferð og útskýra hvernig tölvunarfræðin við HA studdi við hana.
Nám á staðnum lykilatriði
Í iðnaðar- og orkutæknifræði er lögð áhersla á hagnýtt tækninám sem tengist iðnaði, orku og raunverulegum verkefnum og við brautskráninguhljóta stúdentar lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur. Kennsla fer fram í staðnámi við HA, dæma- og verkefnatímar eru með kennara á staðnum og námið tengist atvinnulífinu, meðal annars með starfsnámi og lokaverkefnum sem oft eru unnin í samstarfi við fyrirtæki.
Tölvunarfræði við HA er þriggja ára BS-nám sem byggir á samstarfi HA og HR. Kennsla fer fram í sveigjanlegu námsformi þar sem stúdentar horfa á fyrirlestra á netinu og mæta vikulega í verkefnatíma með kennara á staðnum. Í náminu er meðal annars lögð áhersla á forritun, hugbúnaðarþróun, gagnasöfn, netkerfi, kerfisgreiningu og lausnamiðaða verkefnavinnu. Einnig er í boði tveggja ára diplómanám í tölvunarfræði.
Tækninámsdagurinn er opinn öllum og hentar jafnt áhugasömum um nám í tæknigreinum, fulltrúum atvinnulífsins, framhaldsskólanemum, fjölskyldum og öðrum sem vilja sjá hvað framtíðarfólk í tækni- og tölvugreinum er að fást við.
Öll velkomin!