Verðlaun úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur verða veitt í fyrsta sinn á Námstefnu í Byrjendalæsi, sem haldin verður á morgun, föstudaginn 11. september, við Háskólann á Akureyri. Með verðlaununum verður framúrskarandi starf kennara og leiðtoga í þágu læsismenntunar heiðrað og athygli vakin á góðum starfsháttum sem styrkja læsi nemenda.
Aðferðin haft áhrif á þúsundir nemanda
Námstefnan í ár er tileinkuð minningu Rósu Eggertsdóttur, fræðikonu, menntafrumkvöðuls og höfundar Byrjendalæsis. Rósa starfaði um árabil við Háskólann á Akureyri og Miðstöð skólaþróunar (MSHA), þar sem meginviðfangsefni hennar voru læsi, skólaþróun og starfsþróun kennara.
Í þróunarverkefninu Byrjendalæsi sameinaði hún þessi viðfangsefni með áherslu á fjölbreyttar þarfir barna, faglegt sjálfstæði kennara og skapandi námsumhverfi. Aðferðin hefur á undanförnum tveimur áratugum náð til mörg hundruð kennara og þúsunda nemenda víða um land.
Horft til allra þátta læsis
Verðlaunin eru veitt kennara eða kennarateymi sem hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur, nýbreytni eða fyrirmyndarstarf í læsiskennslu. Við mat á tilnefningum er meðal annars horft til fagþekkingar og kennsluaðferða, námsaðlögunar, áhrifa á nám og framfarir nemenda, faglegs samstarfs og framlags til skólasamfélagsins.
Með verðlaununum er arfleifð Rósu haldið á lofti með lifandi hætti. Um leið og framlag hennar til fræða og skólastarfs er heiðrað fá kennarar sem halda starfinu áfram verðskuldaða viðurkenningu og hvatningu til frekari þróunar.
Jenný Gunnbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá MSHA, mun fjalla um Rósu sem fræðikonu og frumkvöðul við upphaf námstefnunnar. Í kjölfarið mun Ingibjörg Auðunsdóttir frá Zontaklúbbnum Þórunni Hyrnu afhenda fyrstu viðurkenningarnar úr sjóðnum, en sjóðurinn er í vörslu klúbbsins.
Ráðstefnan Læsi til náms og yndis
Daginn eftir námsstefnuna býður MSHA upp á ráðstefnuna Læsi til náms og yndis. Tveir þekktir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar verða meðal aðalfyrirlesara á bæði námsstefnunni og ráðstefnunni. Það eru þau Dominic Wyse og Pernille Ripp sem nálgast læsiskennslu frá ólíkum en samverkandi sjónarhornum og tengja þannig saman rannsóknir og daglegt starf kennara.
Um gríðarlega spennandi viðburði er að ræða og enn eru sæti laus fyrir áhugasöm. Hér geturðu smellt til að nálgast frekari upplýsingar og upplýsingar um skráningu.
Við hvetjum öll sem fyrir málefninu brenna að kynna sér viðburðina vel og öll eru velkomin.