Vill styrkja böndin milli háskóla og bæjar

Opið hús bauð í gær upp gönguferð um svæðið með rektor og spjall um starfsemina
Vill styrkja böndin milli háskóla og bæjar

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, tók á móti gestum í gær, sagði þeim sögu skólans og kynnti þeim fyrir helstu nýjungum í háskólastarfinu. Opið hús er liður í því færa meira líf inn á háskólasvæðið og að tengja skólann og bæjarbúa sterkari böndum sem að hennar mati er mikilvægt.

Hún sagði gestum meðal annars frá fyrirhugaðri byggingu stúdentagarða sem verða við hlið skólans og eru framkvæmdir þar að fara af stað. Þessum stúdentagörðum er ætlað að mæta þörf hvað varðar litlar íbúðir ætlaðar einstaklingum eða pörum. Áslaug vonast til þess að nálægðin verði til þess að færa meira líf inn á sjálft háskólasvæðið.

Meðal þeirra sem urðu á vegi gesta á Opnu húsi voru fulltrúar hjúkrunarsviðs Háskóla Íslands sem voru að kynna sér og tileinka sér tækninýjungar sem notaðar eru í hermikennslu við HA. Í sjálfri kennslumiðstöðinni fengu gestir innsýn inn í búnað háskólans og heimsóttu myndver sem er mikið notað af starfsfólki og stúdentum HA.

Þegar kynningarferðinni lauk var haldinn stuttur vinnufundur með gestum á Opnu húsi og rætt um framhald verkefnisins. Margar góðar hugmyndir komu fram um þemu sem fólk vill fræðast um, meðal annars listir, tungumál, tækni og framandi menningarheima.

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár – Akureyrarbær. Stefnt er að áframhaldandi viðburðum á vegum samstarfsins og við hvetjum fólk til að gerast Góðvinur og fylgjast með á facbook síðu samtakanna. 

Upplýsingar um Góðvini á unak.is
Facebook síða Góðvina