Gervigreindin og við

21. september 2026 kl. 14:00-15:00
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær

Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi og sérfræðingur hjá Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð byrjar haustið hjá fyrirlestraröðinni Opið hús.

Hún mun fjalla um gervigreind út frá eftirfarandi spurningum: 

  • Hvað er það með þessa gervigreind?
  • Hvað erum við í Háskólanum á Akureyri að gera í tengslum við notkun gervigreindar
  • Hvernig er hægt að nýta sér möguleika gervigreindatóla í daglegu lífi?
  • Hvað ætti að hafa í huga við notkun slíkra tóla?

Boðið verður upp á fleiri erindi á vormisseri á Opnu húsi:

  • 5. okt - Örugg efri ár - samtal um ofbeldi gegn eldra fólki
  • 30. nóv - 1. desember. Sagan og mikilvægi dagsins 
  • 14. des - Hvernig tala kerfin okkar saman? Kynning frá HSN og SAk

Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir - Ókeypis aðgangur!