Huglægur aðgerðarsinni eða hlutlægur áhorfandi?: Hlutverk blaðamanna í umhverfismálum

7. október 2025 kl. 11:00-12:00
Félagsvísindatorg

Öll velkomin á Félagsvísindatorg!

Að þessu sinni mun Guðbjörg Hildur Kolbeins dósent við Félagsvísindadeild flytja erindið: Huglægur aðgerðarsinni eða hlutlægur áhorfandi?: Hlutverk blaðamanna í umhverfismálum

Umhverfismál hafa mikið verið í brennidepli á undanförnum árum en nokkur upplýsingaóreiða ríkir um þetta efni, sérstaklega þar sem forystufólki í stjórnmálum og sérfræðingum ber iðulega ekki saman. Blaða- og fréttamönnum er því viss vandi á höndum, það er að segja að ákveða hvort hleypa eigi öllum sjónarmiðum að eða eingöngu þeim röddum sem þeir sjálfir telja segja sannleikann. Á Félagsvísindatorgi mun Guðbjörg fjalla um hvernig blaða- og fréttamenn skilgreina hlutverk sitt, og hvernig þeir reyna að sigla á milli skerja, í fréttaflutningi um umhverfismál.

Guðbjörg Hildur Kolbeins er dósent í fjölmiðlafræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún lauk doktorsprófi í fjölmiðlafræði frá University of Wisconsin-Madison en hafði áður lokið MA- og BS-prófi í sömu grein frá háskólum í Minnesota. Hún er auk þess með MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.

Öll velkomin!