16. september 2026 kl. 12:00-13:00
Pétur Kristófersson ver meistaraverkefni sitt til MS gráðu í sálfræði
Pétur Kristófersson ver lokaverkefni sitt til MS gráðu í sálfræði. Verkefnið ber heitið „Is Heart Rate Variability Associated with Semantic and Procedural Memory Performance in People with Epilepsy?“
Meistaraverkefnið samanstendur af vísindagrein sem hefur verið send til tímaritsins Epilepsy and Behavior og er nú í ritrýniferli.
- Vörnin fer eingöngu fram á Zoom og er öllum opin
- Leiðbeinandi Péturs er Yvonne Höller prófessor við Sálfræðideild HA
- Andmælandi er Dr. Sandra Lafenthaler við Paracelsus Medical University í Salzburg í Austurríki
Smelltu hér til að fylgjast með vörninni á Zoom
Ágrip
Minnistruflanir og truflanir í ósjálfráða taugakerfinu eru algengar hjá fólki með flogaveiki. Tengsl truflana í ósjálfráða taugakerfinu við merkingarbundið (semantískt) og verklegt (prósedúrulegt) minni eru hins vegar minna þekkt og hafa að mestu verið vanrækt, bæði hjá heilbrigðum og klínískum hópum.
Í rannsókninni var kannað hvort truflanir í ósjálfráða taugakerfinu, mældar með breytileika hjartsláttartíðni (HRV), tengdust minnisframmistöðu hjá 68 sjúklingum á flogaveikivöktunardeild í Austurríki.
Tilgátan var sú að hærra HRV tengdist betri frammistöðu í merkingarbundnu og verklegu minni hjá flogaveikisjúklingum. Með fjölbreytu-línulegri aðhvarfsgreiningu var HRV (RMSSD, SDNN, lág- og hátíðnisvið, og hlutfall LF/HF) borið saman við frammistöðu í merkingarbundnu minni (upprifjun á merkingarlega tengdum orðapörum) og verklegu minni (fingursláttarverkefni) í þremur hópum: vinstra gagnaugablaðaflogaveiki (n = 14), önnur flogaveiki, þ.m.t. hægra og tvíhliða gagnaugablaðaflogaveiki (n = 46), og engin flogaveiki (n = 8).
Í óleiðréttum líkönum var flogaveikigreining notuð sem sambreyta.
Í leiðréttum líkönum voru aldur, kyn, hjarta- og blóðþrýstingsþættir, og flogaveikilyf notuð sem sambreytur.
Niðurstöður sýndu að frammistaða í merkingarbundnu minni tengdist marktækt aldri, en ekki HRV, hvorki í óleiðréttum né leiðréttum líkönum. Aftur á móti voru SDNN, RMSSD, og lág- og hátíðnisvið öll marktæk í óleiðréttum líkönum, bæði fyrir og eftir Bonferroni-leiðréttingu, og í leiðréttum líkönum fyrir en ekki eftir Bonferroni-leiðréttingu. Flogaveikihópur tengdist hvorki merkingarbundnu né verklegu minni. Niðurstöður benda til þess að hærra HRV geti mögulega tengst betri frammistöðu í verklegu minni, sem opnar möguleika á frekari rannsóknum bæði hjá klínískum og heilbrigðum hópum.
Öll velkomin að fylgjast með!