15. maí 2026 kl. 12:00-13:00
Kynning á meistaraverkefni við Viðskiptadeild
Friðrik Unnar Arnbjörnsson stúdent við Viðskiptadeild kynnir meistaraverkefnið sitt
Rannsóknin fjallar um tengsl þrautseigju og undirvídda hennar, langvarandi áhuga (e. long term passion) og einbeittrar viðleitni (e. perseverance of effort) við lýðfræðilega þætti. Henni er ætlað að fylla í tómaróm í þrautseigjufræðum með því að birta niðurstöður út frá líkindaúrtaki á landsvísu sem byggir á upprunalega 12 spurninga þrautseigjulistanum.
- Kynningin fer fram í stofu M101
- Streymt verður frá kynningunni hér á Zoom
Helstu niðurstöður
Niðurstöðurnar sýna að aldur, menntun og tekjur eru þeir lýðfræðilegu þættir sem tengjast þrautseigju en að hlutverk undirvídda þrautseigju er mismunandi eftir þáttum.
Sterkasta tengingin var milli aldurs og heildarþrautseigju og langvarandi áhuga. Menntun hafði tengingu við þrautseigju og báðar undirvíddir hennar og tekjur voru tengdar þrautseigju en aðeins gegnum einbeitta viðleitni. Hvorki kyn né búseta reyndust hafa marktæka tengingu við þrautseigju eða undirvíddirnar tvær.
Jafnframt fundust engar vísbendingar um að búseta hefði áhrif á tengsl menntunar og þrautseigju eða undirvídda hennar.
Þessar niðurstöður sýna að undirvíddir þrautseigju hafa mismunandi tengingu við þá lýðfræðilegu þætti sem voru til skoðunar og benda til þess að ef aðeins er litið til heildarþrautseigju gæti skort þýðingarmikinn mun á undirvíddum hennar.
Öll hjartanlega velkomin!